3 down 1 to go

w.jpg3 próf búin – 1 eftir. – JE!

Kettir eru fjandans óþverradýr. Var að skafa þykkildi af mínum gullfallegu löppum og kettirnir átu það jafn óðum. Þeir meiraðsegja slógust um gotteríið – gáfu frá sér óhljóð þegar annar gerði sig líklegan til að stela siggkögglinum frá hinum. Loksins orðnir að einhverju gagni þessir helvítis asnar. Kann ekki nógu vel við ketti þessa dagana. Þeir eru þjófóttir, andfúlir, pirrandi, alltaf fyrir, sí vælandi, skemma hluti og bara general pain in the ass. Minnið mig á það að leyfa aldrei aftur ketti inn á mínu heimili. Verst að ég gekk í þessa gildru og núna er of seint að bakka. Ég sit uppi með kettina þangað til að ég finn leið til að losna við þá eða þeir drepast úr elli. Aðeins nokkur ár í það – hvað verða kettir annars gamlir?

Ef mér tekst ekki að losna við þá þá hefur mér allavega tekist að ala upp mannætuketti. Vakna einhverja nóttina eins og franska konan sem vaknaði við að hundurinn hennar var að éta af henni andlitið. Hundurinn hefur líklega fengið að éta sigg og komist á bragðið. Þetta er bara tímaspursmál! Kattarófétin eru bara að bíða eftir að verða stærri og sterkari til að geta étið nóg af holdi in one go. Þeir vita nefnilega að þeir komast ekki upp með það aftur – þetta er eins og fólk sem kemst í nammi. Hámar í sig eins og það eigi lífið að leysa útaf því að það gæti verið seinasta skiptið sem það fær nammi.

Eða eitthvað

14 Comments »

  1. ingo Said,

    November 20, 2006 @ 18:54

    Ég var búinn að segja þér hvað kettir væru viðbjóðslegir. Þeir verða eitthvað um 60ára held ég. Þannig að þú mátt reikna með því að þeir eigi eftir að gæða sér á rotnu líki þínu eftir tjaaahh 50 ár.

  2. sófus Said,

    November 21, 2006 @ 0:41

    “In captivity, indoor cats typically live 14 to 20 years, though the oldest-known cat lived to age 36.”

  3. Gummi Said,

    November 21, 2006 @ 4:01

    Ég ætla ad vona ad their(hvad ertu med marga eiginlega?) geri vid thig eins og mínir gerdu vid Bjössa: Skitu og migu í rúmid hans like there was no tomorrow!

  4. Keli Said,

    November 21, 2006 @ 10:39

    Ni, þrátt fyrir að mér er venjulega fremur illa við þá er þeim frekar vel við mig. Mala við minnstu snertingu og vilja ekkert frekar en að vera nálægt mér.
    Það væri reyndar fínt ef þeir skitu í rúmið, ég myndi fjandans henda þeim í klósettið og sturta þeim á haf út ef þeir myndu gera það.

    Problem solved.

    Þetta eru 2 kattarkvikindi bæ ðe vei.

  5. Gummi Said,

    November 21, 2006 @ 15:12

    Búinn að gelda þau?

  6. Keli Said,

    November 21, 2006 @ 19:07

    Ni, eru víst of ungir ennþá… Eru 4-5 mánaða held ég.. ekki alveg viss

  7. vlad Said,

    November 22, 2006 @ 12:37

    hvað gengur eiginlega að þér! hvernig datt þér í hug að samþykja ketti inn á heimilið?!?

  8. Keli Said,

    November 22, 2006 @ 13:20

    Mér þykir líklegt að mér hafi verið lofað kynlífi eða einhverjum sóðaskap… Ekki með köttunum bæðevei!

  9. óli Said,

    November 23, 2006 @ 16:34

    veit ekki betur en vlad sjálfur hafi átt kött hérna um árið, held að hann hafi heitið soffía eða eitthvað…..

  10. ingo Said,

    November 24, 2006 @ 1:18

    Jú minnir það líka..vlad átti kött. Tantraði hann hiklaust.

    En keli fékkstu einhver óbjóðslegan sóðaskap fyrir kettarhaldið. Klæddist Gréta fiskabúning?

  11. Gummi Said,

    November 24, 2006 @ 8:57

    Ég skírði minn kött Pjásu. Svo lét ég skjóta hana og ég fékk mér 2 aðra, skírði þá Snata og Depil þó að þeir væru mjög greinilega læður.

    Lét skjóta þær báðar…

  12. Keli Said,

    November 26, 2006 @ 18:44

    Grétu kettir heita drulli og bumbi.

  13. Tuls... Said,

    November 27, 2006 @ 18:21

    I´m utterly disgusted….

    Ég læt sem ég hafi aldrei lesið öll þessi komment

  14. Keli Said,

    November 29, 2006 @ 9:50

    Veimiltíta!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment