Fákurinn mættur á götuna
Jebb, fékk mótorhjólið í gær. Mikill ferskleiki, væri úti að hjóla núna ef ég væri ekki í skólanum!
Jebb, fékk mótorhjólið í gær. Mikill ferskleiki, væri úti að hjóla núna ef ég væri ekki í skólanum!
3 próf búin – 1 eftir. – JE!
Kettir eru fjandans óþverradýr. Var að skafa þykkildi af mínum gullfallegu löppum og kettirnir átu það jafn óðum. Þeir meiraðsegja slógust um gotteríið – gáfu frá sér óhljóð þegar annar gerði sig líklegan til að stela siggkögglinum frá hinum. Loksins orðnir að einhverju gagni þessir helvítis asnar. Kann ekki nógu vel við ketti þessa dagana. Þeir eru þjófóttir, andfúlir, pirrandi, alltaf fyrir, sí vælandi, skemma hluti og bara general pain in the ass. Minnið mig á það að leyfa aldrei aftur ketti inn á mínu heimili. Verst að ég gekk í þessa gildru og núna er of seint að bakka. Ég sit uppi með kettina þangað til að ég finn leið til að losna við þá eða þeir drepast úr elli. Aðeins nokkur ár í það – hvað verða kettir annars gamlir?
Ef mér tekst ekki að losna við þá þá hefur mér allavega tekist að ala upp mannætuketti. Vakna einhverja nóttina eins og franska konan sem vaknaði við að hundurinn hennar var að éta af henni andlitið. Hundurinn hefur líklega fengið að éta sigg og komist á bragðið. Þetta er bara tímaspursmál! Kattarófétin eru bara að bíða eftir að verða stærri og sterkari til að geta étið nóg af holdi in one go. Þeir vita nefnilega að þeir komast ekki upp með það aftur – þetta er eins og fólk sem kemst í nammi. Hámar í sig eins og það eigi lífið að leysa útaf því að það gæti verið seinasta skiptið sem það fær nammi.
Eða eitthvað
Nei, ég held nú síður, það féll niður kennsla í dag. Ótrúleg leti þetta í kennurunum að mæta ekki þegar það er vika í próf og seinustu tímarnir framundan. LETI SEGI ÉG!
Í öðrum fréttum má minnast á það að mótorhjólið mitt er væntanlega að leggja frá landi í þýskalandi í þessum töluðu orðum. Þegar nasistalandið hefur verið yfirgefið er það bein leið hingað til Íslands þar sem ég get farið að missa þvag yfir það af gleði. Já eða saur.
Talandi um saur. Ég er einmitt að kúka núna. Og á meðan ég skrifaði þessar 2 málsgreinar hérna á undan, þá var ég að kúka allan tímann. Og ég meina að kúka í alvörunni, það er einn risalorri í klósettinu eftir þessar setningar. Ótrúlegt þetta allbran – maður kúkar og kúkar og kúkurinn er svo ofsalega mjúkur og fínn að maður finnur varla fyrir því hvað rassgatið glennist. Í rauninni má segja að það glennist voðalega lítið vegna þess hve kúkurinn er mjúkur og fínn.. Hann bara ullast út í huggulegri bunu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Ég mæli eindregið með þessu frábæra morgunkorni. Gleður mig alltaf þegar ég sest á klósettið og kúkurinn er svona ofur viðráðanlegur.
Svo er það danmörk á föstudaginn. Verð í köben, tussuferskur að fara uppá Margréti (drottninguna, ekki kærustuna). Good times ahead!