Skóli er hamingja
Já, það er heldur betur alltaf hægt að gera sér eitthvað til dundurs í skólanum. Verkefni, dæmi, forritun og fleira, það er aldrei dauður tími. Sem er líka eins gott, því ekki mætir maður í skólann til þess að slóra eitthvað! Maður er hérna til þess að drekka í sig þekkingu úr hinum ótæmandi brunn þekkingar! Maður spyr kennarana spjörunum úr og reynir að slá á þekkingarþorstann í viðamiklum brunn kennaranna (hljómar erótískt!). Kennararnir virðast aldrei aldrei þreytast á leið manns um menntaveginn og reyna að hjálpa manni við hverja hindrun og hvert skref. Því langar mig að koma á framfæri óhömluðu þakklæti minnar til þessarar merku stofnunar sem skólinn minn er: Háskólinn í Reykjavík.
…Svo er líka hægt að blogga.