Archive forOctober, 2006

Samskip og nasistarnir eru asnar

Samskip eru búin að segja mér 10 mismunandi hluti með flutning á þessu fjandans hjóli þannig að það er allt komið í rugl.

BMW eru núna allt í einu farnir að segja að þeir höndli ekki að fylla út fjandans útflutningspappírana og að þeir geti ekki pakkað hjólinu þannig að samskip taki við því

Hinsvegar var ekkert mál að pakka hjólinu og redda pappírum þegar ég talaði við nasistana fyrst. Núna eru þeir búnir að fá pening og þá geta þeir ekkert gert

Styttist í að ég fari þangað og lumbri á einhverjum. Ekki sáttur!

Comments (2)

Hash table

Þarf víst að skila verkefni í kvöld. Skemmtilegt mjög. Á að gera mína eigin útfærslu á hash töflu – þmt hash function sem veldur fáum árekstrum. Af hverju á ég að geta gert eitthvað sem tölvunarfræðingar hafa glímt við síðan 1970 og hefur ekki enn tekist að gera almennilega?

Kann illa viða svona vitleysu.

Comments (2)

Vrrrúúúúmmm

w1.jpg
Keypti þennan fjanda í gær. Öss.

BMW F650GS – Árgerð 2001, keyrt 10.300km

Comments (1)

Leitarvélarnar elska mig

Þess má til gamans geta að sá leitarstrengur sem er oftast notaður til að komast hingað er “nude stud”. Mér þykir leiðinlegt að valda vonbrigðum, þannig að í framtíðinni ætla ég að reyna að pósta mynd af mér í vafasömum stellingum sem oftast. Ég virðist eiga sterkt bandarískt hommafanbase og það er ekki úr vegi að gleðja litlu faggatittina öðru hvoru.

Comments (5)

Haugur pabbi

w.jpgFékk þessi skilaboð hérna á msn í gær, mér fannst þau frekar skemmtileg, sérstaklega seinasta línan:

(22:27:21) Haukur J: www.pbase.com/haukurjo
(22:27:30) Haukur J: við erum orðin foreldrar!!!!
(22:27:35) Haukur J: Haukur pabbi!
(22:27:38) Haukur J: shit

Til hamingju Haugur og Heiða, þar fóru næstu 15 ár.. í tóma vitleysu! :)

Má ég svo leggja til að drengurinn verði skírður Hrafnkell?

Comments (1)

Skóli er hamingja

Já, það er heldur betur alltaf hægt að gera sér eitthvað til dundurs í skólanum. Verkefni, dæmi, forritun og fleira, það er aldrei dauður tími. Sem er líka eins gott, því ekki mætir maður í skólann til þess að slóra eitthvað! Maður er hérna til þess að drekka í sig þekkingu úr hinum ótæmandi brunn þekkingar! Maður spyr kennarana spjörunum úr og reynir að slá á þekkingarþorstann í viðamiklum brunn kennaranna (hljómar erótískt!). Kennararnir virðast aldrei aldrei þreytast á leið manns um menntaveginn og reyna að hjálpa manni við hverja hindrun og hvert skref. Því langar mig að koma á framfæri óhömluðu þakklæti minnar til þessarar merku stofnunar sem skólinn minn er: Háskólinn í Reykjavík.
…Svo er líka hægt að blogga.

Comments