Kristján á sjúkrahúsi
Þegar Kristján er með eitthvað rugl við mig, eins og t.d. að vinna mig, þá tek ég málin í mínar hendur og myl spaðann á hausnum á honum… Eða gólfinu.
Ég er hættur að spila skvass, ætla að taka upp eitthvað sem ég verð ekki æstur yfir.
Einhverjar hugmyndir um hvaða sport það gæti verið? Það má ekki vera neitt sem æsir viðkvæman hug minn upp í því.
Gummi Said,
September 14, 2006 @ 9:49
Bocchia(þroskahefti fávitinn þinn).
Golf og skák eru víst líka kallaðar íþróttir…
Keli Said,
September 14, 2006 @ 13:46
Það er náttúrulega deginum ljósara að ég myndi henda bocchia kúlunum í einhvern ef mér gengi illa – og þær eru fjandi þungar, líklega betra að berja fólk með skvassspaða en grýta þá með bocchia kúlum.
Og ekki láta mig byrja á golfkylfum, það eru nú bara hreint og beint drápstól!
Gummi Said,
September 15, 2006 @ 11:46
Farðu þá bara að safna frímerkjum, fyrst þú getur hreinlega ekki verið innan um annað fólk!