Leiðist!
Já, Hönnun og smíði hugbúnaðar er aldeilis ekki upplífgandi fag. Eiginlega barasta leiðinlegt! Ótrúlegt nokk, en svona er þetta bara. Ég get þó huggað mig við það að það eru bara 9 mánuðir eftir af skólanum í vetur… svo er frí, og aðrir 9 mánuðir. Gvöð hvað þetta á eftir að líða hratt, mér finnst eins og ég hafi bara fæðst í gær. Eða bara alls ekki.
Vísindaferð í landsbankann á morgun. Treysti því að þar verði hafðar guðaveigar við hönd og eitthvað fancy að borða. Helvítis bankar hafa ekkert betra við peningana að gera en að splæsa veigum í heimska og fátæka háskólanema. Sem ég einmitt er! Hver vill annars koma með mér til Las Vegas í janúar? Internext. Klámsíðuráðstefna sem er nauðsynlegt að mæta á. Hitta allar klámstjörnurnar, þefa almennilega af þeim og vita hvort maður vilji promota þessar hórur. Of súr: Þú færð ekki að koma á síðuna mína. Það eru einhverjir sponsorbjánar búnir að lofa mér mat og víni ef ég mæti þangað. Freistandi mjög, nema ég er nokk viss um að það kosti EIGHT BILLION DOLLARS að komast til LV. Sveitt ráðstefna geri ég líka fastlega ráð fyrir. Þúsundir af feitum nördum (eins og mér) að slást um það að taka myndir á símann sinn af innviðum klámstjarnanna.
Held reyndar að það sé lítið um stjörnurnar þarna, bara hommarnir sem sjá um síðurnar þeirra. En maður má nú vona. Kannski Scarlett Johanson sé að koma sér í bransann og sé til í að refsa mér í skiptum fyrir að ég promoti hana á síðunum mínum. Hef heyrt að hún sé óvinsæl í hollywood, og þá liggur klámið auðvitað beint við. Einmitt eins og Arnold Schwarzenegger á eftir að gera þegar hann er búinn að fá nóg af því að vera ríkisstjóri. Gæti vel hugsað mér að ráða þau bæði í klámmynd og kalla hana SPERMINATOR. Plottið gæti fjallað um að hann væri róbót úr framtíðinni sem sæi um að sturta yfir hana brundi á 20mín fresti svo hún ofþorni ekki útaf sjaldgæfum húðsjúkdómi. Líklegt að betra plott hafi ekki komið áður fyrr í klámi, nema þá kannski í Cockwork Orgy, sem er ein uppáhalds klámmyndin hans Sveins – hvar er hún núna?
Jæja, ég má ekki vera að þessu, ég verð nú að fara að fylgjast með í tímanum. Mér tókst allavega að drepa nokkrar mínútur með þessu bulli!
Gummi Said,
September 8, 2006 @ 12:33
Ég var að díla við fullt fólk í nótt sem var eitthvað óánægt. Þau hétu Susan og Santo. Santo var með eitt það klámmyndalegasta skegg sem ég hef séð, auk þess að vera með sítt hár í tagli. Susan var næstum búinn að stinga úr mér augun með silikon túttunum sínum sem voru alveg að fara að sleppa úr flegnasta bol í heimi! Mikið sem þau kvörtuðu. Sögðust nú heldur betur ver alvön hótelum, af því að þau ferðuðust mikið….
Seinna um nóttina þurftu þau að fara og sækja son sinn á lögreglustöðina…og ég hló.
Mér finnst að þú ættir að fara til LV og reyna að taka eins margar myndir af þér með honum þarna…tippaling…ron eitthvað…
Keli Said,
September 8, 2006 @ 15:12
Láttu ekki eins og þú vitir ekki hvað hann heitir! Ron Jeremy!
Gummi Said,
September 12, 2006 @ 13:48
:D