Fjandans fjandi
Bloggleti í gangi, enda skólinn ekki byrjaður. Lítið búið að gerast síðan hróarskelda.. gerðist. Fór í göngutúr í þynnku um verslunarmannahelgina. Labbaði uppá glym, hæsta foss Íslands. Fór í sveitina að hlaupa uppi rollur. Gott mjög. Sólbrann við þá iðju. Vont mjög.
Fer á Krít með grettu næsta mánudag. Ekkert að því. Alltaf gaman að fara til landa þar sem lofthitinn er hærri en líkamshitinn manns. Svo indælt að vera *alltaf* í heitapotti. Nema hvað vatnið er svitinn manns. Ég er ekki viss hvort mig langi lengur. Hvað gerir maður annars á krít? Eru grikkir ekki drullu fjandans leiðinlegir? Það held ég.
Startaði nýrri síðu um daginn. Ensk útgáfa af dollu.is. Ossa fínt.
Bless.
Gummi Said,
August 12, 2006 @ 21:10
Þegar ég var á Krít fór ég á vatnaketti, það var ágætt. Svo skaltu finna þér einn góðan stað til að borða á og fara alltaf á hann. Þegar þeir eru farnir að halda að þú sért fastagestur byrja þeir að gefa þér allskonar fríkeypis, drykki og mat og solleiðis….bjöllusauðir…