Archive forAugust, 2006

Kominn frá Krít

Skemmtileg ferð, heitt, 40-44°C eða svo megnið af tímanum.

Er byrjaður í skólanum. Ekki heitt. Kalt.

Setti nokkrar myndir á flickr – artyfarty shittið þar, set eitthvað skemmtilegt á giveth svo seinna.

Myndirnar þarna á flickr eru frá santorini. Er að vinna fleiri myndir sem koma svo inn þegar ég er búinn að fikta aðeins í þeim.

Vorum í 2 vikur á Krít. Drukkum rauðvín og bjór, rölluðum á scooter og annað túristalegt. Tók um 600 myndir.

Hvað er annars að fréttaaa?

Comments

Fjandans fjandi

Bloggleti í gangi, enda skólinn ekki byrjaður. Lítið búið að gerast síðan hróarskelda.. gerðist. Fór í göngutúr í þynnku um verslunarmannahelgina. Labbaði uppá glym, hæsta foss Íslands. Fór í sveitina að hlaupa uppi rollur. Gott mjög. Sólbrann við þá iðju. Vont mjög.

Fer á Krít með grettu næsta mánudag. Ekkert að því. Alltaf gaman að fara til landa þar sem lofthitinn er hærri en líkamshitinn manns. Svo indælt að vera *alltaf* í heitapotti. Nema hvað vatnið er svitinn manns. Ég er ekki viss hvort mig langi lengur. Hvað gerir maður annars á krít? Eru grikkir ekki drullu fjandans leiðinlegir? Það held ég.

Startaði nýrri síðu um daginn. Ensk útgáfa af dollu.is. Ossa fínt.

Bless.

Comments (1)