Gasgrímur eru ekki kvenna með færi
Það ætti satt best að segja að banna stúlkum að vera drukknar.
*pása* – þurfti að kúka
Já, ég var eitthvað að minnast á drukknar stúlkur. Það sem þær gera, er að henda gasgrímum í sofandi fólk. Jebb, það er akkúrat það sem þær gera. Laugardagskvöldið á hróarskeldu. Fínasti fílíngur í gangi. Ég fer að sofa um 3 leytið og rotast að sjálfsögðu undir eins sökum óhóflegrar áfengisdrykkju. Kemur ekki Sigga, kerlingin hans Gumma heim, fjúríus og grýtir í mig gasgrímunni sinni. Og hittir svona líka dead on í augað á mér. Bölvuð.
Þessi mynd er samt ekki alveg nógu góð, sýnir ekki alveg alla litablæina einhvernvegin. Gildir einu, þið fáið allavega hugmynd um geðsýki drukkinna kvenna. Bölvaðar.
Hróarskelda var fín.
Miðvikudagur
Mættum (ég gummi og sigga) á miðvikudeginum og tjölduðum í fjarska frá tónleikasvæðinu. Það voru víst gerð alltof fá tjaldstæði þannig að öll tjaldstæði voru pretty much booked á sunnudagskvöldið. Þeir sem komu eftir það þurftu að labba lengi að leita, og svo færa tjöld til til að geta troðið sínu einhversstaðar á milli.
Við vorum þar engin undantekning og þurftum að tjalda aðeins útá stíg, og það var ekkert lítið sem við vorum skömmuð fyrir það líka. Helvítis orange sjálfboðaliðarnir voru með leiðindi alltaf þegar þeir löbbuðu framhjá, þótt það væri alveg viðurkennt að það vantaði tjaldstæði og svona. Bölvaðir.
Fimmtudagur
Þynnka furðu lítil, jafnvel hjá Gumma. Veðrið var aðeins farið að hitna, en samt alveg skýjað megnið af deginum.
Ég byrjaði á að kíkja á Editors, sem voru góðir mjög. Hressandi band. Svo var það Jenny Wilson, eða 3 lög frá henni eða svo, fínasta shit að sitja yfir því góli og drekka bjór, ekkert að því. Svo var það Axl Rose og félagar í Guns and Roses. Helvítis fíflið lét bíða eftir sér í friggin klukkutíma, tók svo Paradise city og eitthvað shit. Svo þegar stemmarinn var að detta í gang hjá fólki, þá fór hann baksviðs í 10mín eða svo á meðan hinir hljómsveitarmeðlimirnir reyndu að covera hann með lélegum riffum. Þetta gerðist alveg margoft. Röddin var furðu góð hjá kauða og það voru idiotic margir á tónleikunum, en honum tókst alveg að skemma þá með þessu heimskulega shitti sínu. Ég lét mig hverfa eftir slatta af lögum til þess að fara á Sigurrós. Þeir voru þokkalega hressir eins og venjulega, en samt ekki alveg my bag of cookies. Ég bara sat og drakk bjór ótæpilega eins og fyrri daginn. Svo var nú bara haldið heim á leið með stoppum á einhverjum matarbúllum.
Föstudagur
Óbærilega heitur morgun. Shit hvað það var heitt í litla, dökka kúlutjaldinu. Ég var alveg viss um að ég myndi drepast úr hita þarna, og maður vaknaði alveg úber snemma sökum þess að maður var sveittur sem grís og hve mikið Gummi prumpaði í svefni.
Dagurinn leið í svitakófi vegna þess að sólin var komin og orðið algjörlega heiðskýrt. Ógeðslega heitt. oj.
Fór í hróarskeldubæinn yfir daginn vegna þess að okkur fannst tónleikadagskráin ekkert sérstaklega spennandi. Átum þar, versluðum sólarvörn og eitthvað svona shit. Svo fékk ég að kúka á einu veitingahúsinu, sem var líklega það sem reddaði ferðinni minni. Og shit hvað ég gerði svakalegasta bremsufar sem ég hef nokkurntíman gert. Klósettið var 100% brúnt, allsstaðar! Þetta var svo rosalegt að orð fá því enganvegin lýst. Ég skammaðist mín líka svo fyrir að drulla svona á klósettið að ég hafði ekki rænu á því að taka mynd. Sorry krakkar, en stundum er þetta bara svona.
Í bænum fórum við svo á bar og horfðum á leiðinlega íþrótt er við fótbolta er kennd. Þýskaland… og einhverjir aðrir, man ekki hverjir. Þýskaland vann allavega í vítaspyrnukeppni. Þetta var ofsalega lengi að líða, og ég held að ég hafi eytt svona 4-500 dkr í bjór þarna. Enda fór ég þaðan alveg fjandans rúllandi fullur og Helfjandans flottur!
Svo þegar við vorum komin aftur á hátíðina þá var kíkt á Bob Dylan, sem var bæ ðe vei orðin friggin ævaforn! Gaurinn er orðinn svo friggin gamall og fuck hvað röddin hans var ónýt. Horfði á svona 5-7 lög með honum en gafst svo bara upp. Man ekki alveg hvernig þetta var, hvort ég hafi ekki bara farið útí tjald því ég nennti ekki að vera faggi og horfa á streets eða eitthvað faggapopp eins og það.
Svo aftur á svæðið, og þar beið manns sko aldeilis hresst band, Kashmir, hreinræktaðir danir úr kóngsins ODENSE. Öss hvað þeir voru hressir, einir af bestu tónleikum hátíðarinnar held ég bara. Tónleikarnir voru búnir um 4 og þá var haldið í tjaldið, þar sem sigga drapst undir eins en ég og gummi héldum áfram að drekka og vera í frisbee til um 8, þegar sólin var löngu komin upp. Og vegna þess að sólin var komin upp, og áfengisdauði endist aðeins í í mesta lagi 2 tíma, þá fengum við bara 2 tíma svefn. Reyndar var gummi faggatittur og fór svo aftur að sofa og náði alveg amk 2-3 tímum auka, ég meikaði hinsvegar ekki meiri svefn, enda alveg 100% úthvíldur.
Laugardagur
Aðal fjandans tónleikadagurinn. Frábær dagskrá framundan og gleðin í hámarki. Dagurinn var sirkabout alveg jafn ógeðslegur og fyrri dagurinn, með tilheyrandi svitakófi og ógeði.
Fyrstu tónleikarnir voru klukkan 17:00 og á Deftones mættu á Orange á hárréttum tíma. Fjandi góðir tónleikar, ekkert síðri en þegar ég sá þá 2001. Chino hress og kátur og ekkert nema hamingja. Svo var maður líka bara svo spenntur að bíða eftir hinum böndunum.
19:00 Voru það Primal Scream sem voru einnig pussugóðir. Ég reyndar bara sat einhversstaðar og hlustaði á shittið þeirra, en þeir spiluðu alla hittarana og þetta var pussufínt hjá þeim – Var líka aðeins búinn að hita upp fyrir hátíðina og rifja upp helstu lögin þeirra þannig að maður gat aðeins trallað með þeim.
22:30 TOOL shit hvað það voru bestu tónleikar sem ég hef trallað við held ég. Hressandi fjandans mjög og alveg vel sáttur við krakkana. Kátir mjög. Töff show alltaf hjá þeim þótt maður sjái eiginlega aldrei neinn á sviðinu. Tónlistin var bara fjandans nógu rosaleg. Betra en 2001 líka því núna þekkti ég bandið og lögin.
01:00 gerðist ég helsvartur og hlustaði á negrapopp með Kanye West. Ég er svosem ekki alveg nógu mikill negrapoppari til að hafa fílað þetta í tætlur, en ég alveg trallaði bigtime þegar Golddigger kom.
Eftir tónleikana alla fór ég bara heim að sofa og vaknaði með fyrrnefndu tryllikasti og glóðarauganu ríkari.
Sunnudagur
Ógeðslega heitt enn og aftur. Fór til köben, sótti farangurinn minn og fór með til frænku möggu. Fékk mér blund þar og svaf aðeins yfir mig. Missti af lestum, fór eftir vitlausum leiðbeiningum frá dsb og svona vesen eitthvað þannig að ég missti af Arctic Monkeys og The Strokes. Var svosem ekkert að gráta AM, en þótt leiðinlegra að hafa misst af Strokes. Ojæja, nóg framundan svosem.
18:00 Placebo. Brian Melco var hress eins og venjulega og tók hittarana sína, en það voru svo ógó margir á tónleikunum að ég entist ekki lengi. Maður sá ekki einusinni á skjáina, og var alveg 100 metra fyrir utan tjaldið.
19:30 Franz Ferdinand kunna sko aldeilis að spila á sveitaböllum. Og það er það sem Orange sviðið er, sveitaball. Með EIGHT BILLION MANNS. Ekkert um þá að segja svosem, þeir voru bara pussusolid og fínir.
20:45 Kaiser Chiefs karlinn óð í pittinn þar og var á öllum tónleikunum og það var pussufínt. Solid performance og ég er orðinn þreyttur á að skrifa þannig að ég nenni ekki að skrifa um þá. Nema hvað söngvarinn er fucking ljótur. Ojbara. Ljótur kall!
21:30 Roger Waters horfði á 3 lög með honum, fór svo að pakka tjaldinu. Svo þegar ég var að bíða á lestarstöðinni þá heyrði ég öll aðal lögin hans, Money, Comfortably Numb, Brick in the Wall og fleiri tralllög sem allir þekkja. Stemmarinn var alveg rosalegur þegar hann var að taka Brick in the Wall líka, maður heyrði ekki í honum einusinni, það voru svo mikil læti í crowdinu að syngja.
Svo var bara haldið heim til frænku grétu, sofið og farið í flug, and that’s the end of that. Nema hvað ég vaknaði með þetta hér á hægri hönd eftir nóttina þarna. Good times.