Kúka hjá Atla

Jæja, fjórði dagurinn í danmörku og sá fyrsti sem ég hef ekki fengið mér bjór fyrir 12. Ég er með höfuðpínu, og mig grunar sterklega að það sé einmitt útaf því að ég er ekki enn búinn að fá mér einn kaldan. Eða volgan.

Talandi um volgan. Ég fór á ströndina í gær með svennanum og noorunni. Mjög gott og mikið busl. Fjandans hiti hérna samt. Í gær var hitinn eitthvað 20-25 gráður held ég. Sem er nú fjandans full heitt fyrir mig. En nei. Veðurspáin fyrir föstudaginn næsta segir til um að það eiga að vera 37°C hérna, heiðskírt og með öllu ógeðslegt. Þetta er einmitt það sem ég kalla aftakaveður. í snjóbyl getur maður allavega klætt sig sér til hita. Í hita getur maður lítið gert þegar maður er kominn úr fötunum nema láta sér líða illa. Geðveiki og vitleysa.

Yfir út, ég er farinn að sjobba flíkur á sífitnandi skrokk minn.

1 Comment »

  1. danni Said,

    June 30, 2006 @ 18:49

    keyptu þér bong, ég skal kaupa hana af þér, ég skal borga dágóða summu.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment