Danmörk imorgen!

Pullinn orðinn illilega þvalur og bragðlaukarnir allir farnir að skerpast af spenningi við það að fá ekta kebab úr ekta tyrkjakjöti. Öss hvað ég get ekki beðið eftir því að fara á hot chocolate og slafra í mig svosem 2 keböbbum og nokkrum gallonum af köldum FADDARA. Satt best að segja held ég ekki þvagi yfir þessu. Svo var sveinninn síhlýi búinn að tala um skemmtigarðsferð á jótland sem ég er að vonum ofboðslega spenntur fyrir.

Svo má ekki gleyma pókernum á laugardagskvöldið, ég keypti harðfisk sem er einmitt nauðsynlegt snakk í pókerleik. Harðfiskur eða túnfisksalat, sem ég ætla rétt að vona að hann gummi sé farinn að undirbúa, því enginn er pókerinn án túnfisksins, eins og Al Gore er vanur að segja.

Pabbi minn hefur alltaf verið duglegur að gefa mér lífsráð og heilræði og því skil ég hér eitt eftir:

“Teldu ekki fiskana fyrr en karfan er tóm, því fyrr er ekki hægt að slægja”

Takk fyrir og góða nótt

Leave a Comment