Stundum er harðlífi gott

Ég ætla að hætta að éta allbran fyrir hróarskeldu svo ég þurfi ekki að kúka þar. God damnit ég neita að kúka á almenningsklósettum!!!

Það hefur nefnilega verið gegnumgangandi vandamál á þeim hróarskelduhátíðum sem ég hef farið á að ég hef verið í vandræðum með að kúka. Ég sest ekki á ógeðisklósett hvar sem er. Mér bara dettur ekki í hug að fara á kamar til dæmis. Mér er líka meinilla við flest önnur klósett en bara heima hjá mér. Þessvegna hefur hróarskeldan valdið mér ákveðnu hugarangri, þar sem maður er þarna í ca. viku án þess að geta kúkað á mannsæmandi klósettum. Ég man að á fyrstu hátíðinni kúkaði ég ekki í 5 daga og endaði svo á að kúka á ógeðisklósetti í tivoli, í algjörri neyð því ég var kominn með saurvömb eins og svangur sómalíukrakki og magapínu sem gæti slegið hvaða magasár sem er út. Það líka fer alveg með mig að vita að ég geti ekki kúkað – Manni langar það svo miklu meira útaf því að maður veit að maður getur það ekki. Ég hef alveg margoft þraukað svona lengi heima hjá mér án nokkurra vandræða. En það er þetta forbidden lust dæmi, manni langar svo ofsalega útaf því að það er ekki hægt.

Þessi kúkavandamál væru kannski minna mál ef ég væri einn af þeim sem þarf varla að setjast og þá búinn að kúka. En nei, ég er ekki þannig, ég vil fá frið, næði og nóg af tíma.

Fengum annars lyklana að íbúðinni á miðvikudaginn. Keyptum parket í gær og burðuðumst með 70 fermetra af því upp, níðþungur fjandi. Takk til allra þeirra sem hjálpuðu okkur (enginn!).

Góða nótt lömbin mín.

7 Comments »

  1. ingó Said,

    June 16, 2006 @ 11:31

    Þú gleymir því að það er hægt að skíta úti í guðs grænni náttúrunni. Grefur litla holu (eða nota moldvörðuholu) kúkar í og mokar yfir. Því snyrtilegur ertu. Ef það gengur ekki þá eru til fullorðinsbleyjur…möguleikarnir eru endalausir.

  2. Gummi Said,

    June 16, 2006 @ 20:55

    Ég get kannski reynt að nappa nokkrum fullorðinsbleyjum af sjúkrahúsinu fyrir þig, litli kúkaklebrinn minn.

  3. sófus Said,

    June 17, 2006 @ 21:21

    já ég geymdi skituna í 5 daga seinast á hróa líka… hinsvegar eru þessi vatnsklósett svona 10x skárri en kamrarnir á hróa

  4. Keli Said,

    June 19, 2006 @ 9:02

    Bleyjur væru náttúrulega snilld, nema hvað að það fylgja þeim svo margir aukahlutir. Maður getur ekki geymt kúkinn þar til lengri tíma, þá fer hann bara að brenna sig inní rassgatið á sér. Þannig að maður þarf að þrífa þetta, og þá þarf maður duft og blauttissjú og allskonar vesen eitthvað… Þetta er nefnilega helvítis pickle..

  5. Gummi Said,

    June 19, 2006 @ 9:35

    Já, dam. Ég kidnappa bara einni hjúkku sem getur skipt um á okkur og skeint og svoleiðis…

  6. Vladimir Putin Said,

    June 19, 2006 @ 23:20

    eitt sinn fór ég nú með þér á þessa hátíð og man ekki betur en að fólk hafi bara skitið þar sem það stóð eins og helvítis beljur.. t.d. er brennd í huga mér líkt og tattú myndin af manninum sem bara vippaði niður um sig og skeit við hliðina á borði þar sem við sátum að snæðingi.. tók meira að segja mynd af manninum og svo kúknum sem ég reyndar aldrei framkallaði..

  7. Keli Said,

    June 22, 2006 @ 12:05

    Jú mig rámar nú í þetta kúkavesen á manninum við borðið okkar.

    Ef ég bara væri svona. Ég er svo kúkafælinn að ég þarf sérstakar aðstæður til þess að geta komið saurnum frá mér skammarlaust.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment