Atkvæði til sölu
Langar að nota tækifærið hérna á þessu víðlesna bloggi að bjóða atkvæði mitt til borgarstjórnarkosninga til sölu. Hérna er kjörið tækifæri fyrir flokk með peninga á milli handanna að tryggja sér áhrifaríkt atkvæði frá ungum og myndarlegum manni. Verðið er opið og atkvæðið selst hæstbjóðanda. Mér er full alvara með þessari sölu.
Talandi um þetta, það eru allir fífl sem eru í framboði. Hver öðrum lélegri. Ekki nenni ég að kjósa neinn af þeim nema ég fái borgað fyrir það. Og mér finnst líka alveg réttlátt að ég fái borgað fyrir það. Ég fæ pening til að styðja það að viðkomandi flokkur geti komið skoðunum og aðgerðum á framfæri. Atkvæðið mitt gæti verið atkvæðið sem ræður úrslitum kosninganna. Nei – hvern erum við að blekkja. Maður hefur heyrt mörgþúsund svona ræður í öllum mögulegum og ómögulegum bíómyndum og það endar alltaf þannig að það er mörgþúsund atkvæða munur og engu hefði skipt þótt viðkomandi hefði kosið eða ekki. Þetta á einmitt alveg jafn mikið við núna og áður.
Ég er að hugsa um að sleppa því að horfa á sjónvarpið næstu vikuna eða svo. Ég nenni bara ómögulega að hlusta/horfa á einhverjar ömurlegar kosningaauglýsingar frá einhverjum plebbum sem eru búnir að hamast í ímyndaherferðum til þess að vera vissir um að þeir líti nú nógu vel út fyrir alla þá markhópa sem þeir vilja að kjósi sig (18+). Búið að eyða tugi milljóna í að gera fancy auglýsingar og makeup á annars foxljóta pólitíkusa sem ættu ekkert að vera í sjónvarpi til að byrja með. Ljótt fólk á ekki að vera í sjónvarpi, jafnvel þótt það sé búið að setja ofsalega mikið af makeup á það. Ljótt fólk verður alltaf ljótt! Sjáið bara before and after myndirnar af Birni Inga. Það sjá allir að hérna er ekki fríður maður á ferðinni! Jafnvel þótt það sé komið meik framan í hann og búið að setja linsur í hann til þess að hann sé ekki gleraugnaglámur (foureyes)
Nei annars, ég tek þetta til baka – bjóðið í atkvæðið mitt! Það er þess virði, því hvert einasta atkvæði skiptir öllu máli!
Gummi Said,
May 22, 2006 @ 10:30
Það er satt, ljótt fólk á bara ekki að sjást í imbanum og þetta er svo sannarlega ljótur maður…ábyggilega leiðinlegur líka og með heimskulegar hugmyndir!
Rusty Said,
May 22, 2006 @ 14:47
Ljóstt fólk á víst skilið að vera í sjónvarpi! Ljótt fólk er hið fínasta sjónvarpsefni. Svo dæmi sé tekið þá t.d. Guiness World Records Primetime, og Ripleys beleive it or not.
Guðni E. Guðmunds Said,
May 26, 2006 @ 10:42
Ég býst fastlega við því að þið, frændur mínir, kjósið X-B? ;)
Gummi Said,
May 26, 2006 @ 11:27
Ég flyt ekki atkvæði úr landi!