Undur og áhrif Allbran

All bran..Á þarmastarfsemi mína. Þannig er mál með vexti að ég reyni stundum að éta allbran reglulega. Þetta er eitt það versta sem ég hef smakkað og lætur mig fá það á tilfinninguna að ég sé að éta hálm. Því bæti ég slatta af cocopuffs úti til að laga bragðið aðeins (ég er ekki að éta þetta til að vera helköttaður og flottur). Þegar ég er búinn að drullast til að éta þetta svona 1-2 morgna, þá fer þetta strax að hafa áhrif á klósettferðirnar mínar. Þannig er mál með vexti að þessi tímabil sem ég ét allbran, þá fer ég amk 1x á dag að kúka, og er í svona 2 mínútur að því. Þegar ég ét ekki allbran, þá er ég í svona 10-15mín að kúka, og kúka max annan hvern dag, ekki ósjaldan 3ja hvern dag.

Semsagt kúkurinn verður miklu viðráðanlegri og reglulegri af því að éta allbran. Merkilegt hvað svona trefjaskítur getur breytt miklu. Óreyndur amatör gæti sagt að trefjar væru svo grófar og illmeltanlegar að þær lími kúkinn saman og geri hann bara harðari. Nei ég held nú síður! Trefjarnar virka eins og að setja kúkinn í blender – hann verður svo ljúfur og indæll að orð fá því vart lýst! Og þessvegna ætla ég ekkert að vera lýsa því.

Þetta hefur þó einn galla með sér í för. Kúkalyktin verður alveg miklu miklu verri. Sem er líklega ein af ástæðunum fyrir því að maður er svona fljótur að kúka – ef maður væri lengur inná klósettinu í þessari lykt þá myndi það byrja að hafa áhrif á hausinn og líkama manns og ekki víst að maður myndi jafna sig eftir það.

4 Comments »

  1. Gummi Said,

    May 21, 2006 @ 10:57

    Ég kúka minnst einu sinni á dag, stundum oftar og ég hef aldrei smakkað þetta allbran…

  2. Gummi Said,

    May 21, 2006 @ 10:58

    btw: Ég er kominn með frí. Kaupi miða eftir mánaðarmót.

  3. Haukur J Said,

    May 22, 2006 @ 13:49

    Hvenær var það sem ég ætlaði að vinna ykkur í póker?

  4. Keli Said,

    May 23, 2006 @ 9:57

    Ég kem 23 júní, rústa ykkur í póker þá.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment