Archive forMay, 2006

Atkvæði til sölu

Björn Ingi HrafnssonLangar að nota tækifærið hérna á þessu víðlesna bloggi að bjóða atkvæði mitt til borgarstjórnarkosninga til sölu. Hérna er kjörið tækifæri fyrir flokk með peninga á milli handanna að tryggja sér áhrifaríkt atkvæði frá ungum og myndarlegum manni. Verðið er opið og atkvæðið selst hæstbjóðanda. Mér er full alvara með þessari sölu.

Talandi um þetta, það eru allir fífl sem eru í framboði. Hver öðrum lélegri. Ekki nenni ég að kjósa neinn af þeim nema ég fái borgað fyrir það. Og mér finnst líka alveg réttlátt að ég fái borgað fyrir það. Ég fæ pening til að styðja það að viðkomandi flokkur geti komið skoðunum og aðgerðum á framfæri. Atkvæðið mitt gæti verið atkvæðið sem ræður úrslitum kosninganna. Nei – hvern erum við að blekkja. Maður hefur heyrt mörgþúsund svona ræður í öllum mögulegum og ómögulegum bíómyndum og það endar alltaf þannig að það er mörgþúsund atkvæða munur og engu hefði skipt þótt viðkomandi hefði kosið eða ekki. Þetta á einmitt alveg jafn mikið við núna og áður.

Björn Ingi Hrafnsson - eftir meik!Ég er að hugsa um að sleppa því að horfa á sjónvarpið næstu vikuna eða svo. Ég nenni bara ómögulega að hlusta/horfa á einhverjar ömurlegar kosningaauglýsingar frá einhverjum plebbum sem eru búnir að hamast í ímyndaherferðum til þess að vera vissir um að þeir líti nú nógu vel út fyrir alla þá markhópa sem þeir vilja að kjósi sig (18+). Búið að eyða tugi milljóna í að gera fancy auglýsingar og makeup á annars foxljóta pólitíkusa sem ættu ekkert að vera í sjónvarpi til að byrja með. Ljótt fólk á ekki að vera í sjónvarpi, jafnvel þótt það sé búið að setja ofsalega mikið af makeup á það. Ljótt fólk verður alltaf ljótt! Sjáið bara before and after myndirnar af Birni Inga. Það sjá allir að hérna er ekki fríður maður á ferðinni! Jafnvel þótt það sé komið meik framan í hann og búið að setja linsur í hann til þess að hann sé ekki gleraugnaglámur (foureyes)
Nei annars, ég tek þetta til baka – bjóðið í atkvæðið mitt! Það er þess virði, því hvert einasta atkvæði skiptir öllu máli!

Comments (4)

Undur og áhrif Allbran

All bran..Á þarmastarfsemi mína. Þannig er mál með vexti að ég reyni stundum að éta allbran reglulega. Þetta er eitt það versta sem ég hef smakkað og lætur mig fá það á tilfinninguna að ég sé að éta hálm. Því bæti ég slatta af cocopuffs úti til að laga bragðið aðeins (ég er ekki að éta þetta til að vera helköttaður og flottur). Þegar ég er búinn að drullast til að éta þetta svona 1-2 morgna, þá fer þetta strax að hafa áhrif á klósettferðirnar mínar. Þannig er mál með vexti að þessi tímabil sem ég ét allbran, þá fer ég amk 1x á dag að kúka, og er í svona 2 mínútur að því. Þegar ég ét ekki allbran, þá er ég í svona 10-15mín að kúka, og kúka max annan hvern dag, ekki ósjaldan 3ja hvern dag.

Semsagt kúkurinn verður miklu viðráðanlegri og reglulegri af því að éta allbran. Merkilegt hvað svona trefjaskítur getur breytt miklu. Óreyndur amatör gæti sagt að trefjar væru svo grófar og illmeltanlegar að þær lími kúkinn saman og geri hann bara harðari. Nei ég held nú síður! Trefjarnar virka eins og að setja kúkinn í blender – hann verður svo ljúfur og indæll að orð fá því vart lýst! Og þessvegna ætla ég ekkert að vera lýsa því.

Þetta hefur þó einn galla með sér í för. Kúkalyktin verður alveg miklu miklu verri. Sem er líklega ein af ástæðunum fyrir því að maður er svona fljótur að kúka – ef maður væri lengur inná klósettinu í þessari lykt þá myndi það byrja að hafa áhrif á hausinn og líkama manns og ekki víst að maður myndi jafna sig eftir það.

Comments (4)

Grilla grilla grilla!

Rúinn! Eins og rolla!Ég er sjúkur í allt sem er grillað. Sjúkur í lambakjöt á grillið, fisk á grillið, hvalkjöt, NAUTAKJÖT og ég veit ekki hvað og hvað. Sjúkur sjúkur sjúkur!

Hér á ykkar hægri hönd sjáið þið skemmdarverk. Þannig er nú mál með vexti að ónefndur aðili, sem kann illa við að vera nefndur á nafn hér á þessu bloggi – köllum hann bara boombastic. Ákvað að passa uppá að stelpur myndu nú ekki vera síreynandi við mér og útrýma allri samkeppni. Þessvegna ákvað boombastic að rýja á mér höfuðið og gera mig ljótan. Þannig getur boombastic alveg átt mig alein(n) og engar áhyggjur af ástsjúkum táningsstelpum sem vilja ekkert heitar en að verða frægar á leenks.com… Svona er þetta nú, það er ekki allt auðróið (jebb, nýtt máltæki börnin góð).

Comments (8)