Hamborgarabúlla Tómasar

Í einu orði sagt: Skítapleis. Fór gríðarlega spenntur lengst útí Hafnarfjörð að sækja þennan fornfræga stað heim og fjandinn hafi það var ekki bensínsins virði. Þetta var dýrt, fram úr hófi sveitt og bragðvont. Frekar fæ ég mér cheeseburger á McDonalds en þennan fjanda. Þetta kostar ca. sama og ostborgari á American Style, nema bragðast umtalsvert verr. Núll stjörnur af 99 mögulegum!
Langaði bara að koma þessu á framfæri fyrir ykkur sem eruð etv. að pæla í að fara þangað.

5 Comments »

  1. Atli Said,

    April 30, 2006 @ 11:28

    Djöfull er ég sammála þér, það er ekkert varið í þetta. Líkist helst sveittum Wendys burger sem er ekki góður… Er búllan komin til Hafnarfjarðar????
    Þá eru borgararnir í Grill Corner betri heheh ojjjjjj

  2. sófus Said,

    May 2, 2006 @ 13:39

    mér finnst þetta svosem allt í lagi á bragðið, en shitið er allt of lítið fyrir þetta verð… hamborgararnir eru rétt aðeins stærri en á mcdonalds… rugl að verða saddur af svona

  3. Áki Said,

    May 5, 2006 @ 15:11

    agreed, fökking ömó börgers

  4. Guðni Said,

    May 8, 2006 @ 16:12

    Skelfilegir hamborgarar. Vissi reyndar ekki að þetta er komið í Hafnarfjörðinn – skíturinn dreifir sér víða!

    Ætla að draga þig með mér í vikunni á Sægreifann, humarsúpu og grillspjót.

  5. Valdi Said,

    May 13, 2006 @ 21:48

    úff humarsúpa og grillspjót.. hljómar eins og besta í heimi

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment