Iðjuleysi er mitt millinafn

Letilíf hér kem ég!Núna eru prófin að byrja hjá mér. Ég er búinn í skólanum (seinasti kennsludagur var í gær) og fyrsta prófið er á þriðjudaginn. Ég fer í 4 próf og er búinn 19. Apríl. Eftir það ætla ég að fara ekki að vinna. Ég ætla að vera “self-employed”, sem er tilvalið. Svo ætla ég á hróarskeldu. Ég ætla pretty much ekki að gera rassgat allt sumarfríið (rúmir 4 mánuðir), nema kannski vinna í síðunum mínum og etv. opna flerii síður.

Ég er nokkuð viss um að þetta verði besta sumar í tilveru minni. Ekkert vinnurugl og vesen, bara það sem mér dettur í hug! Kannski maður leigi sér skrifstofu einhversstaðar til þess að fá “vinnufrið”. Undir venjulegum kringumstæðum væri ég reyndar mánuði lengur í skólanum að gera lokaverkefni, nema hvað ég fékk mitt annarar annar lokaverkefni metið frá tækniskólanum í Odense þannig að ég slepp við það – BÚJAKASHA!

Svo svona í lokin langaði mér að benda á myndband sem reddaði deginum hjá mér. Þetta er líklega samt ekki myndband sem þið viljið líta á í vinnunni því það er pjása í því.. Og dildo.. Og eitthvað svona sóðalegt – en totally þess virði!

2 Comments »

  1. Tuls.. Said,

    April 11, 2006 @ 20:13

    Ég lagði ekki í myndbandið hér heima, vitandi að það er frá þér.
    Maður veit aldrei á hverju er von héðan…

  2. Gummi Said,

    April 15, 2006 @ 13:34

    Djöfull hefur þetta verið ömurlegur dagur hjá þér fyrst að þetta gladdi þig…

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment