Archive forApril, 2006

Hamborgarabúlla Tómasar

Í einu orði sagt: Skítapleis. Fór gríðarlega spenntur lengst útí Hafnarfjörð að sækja þennan fornfræga stað heim og fjandinn hafi það var ekki bensínsins virði. Þetta var dýrt, fram úr hófi sveitt og bragðvont. Frekar fæ ég mér cheeseburger á McDonalds en þennan fjanda. Þetta kostar ca. sama og ostborgari á American Style, nema bragðast umtalsvert verr. Núll stjörnur af 99 mögulegum!
Langaði bara að koma þessu á framfæri fyrir ykkur sem eruð etv. að pæla í að fara þangað.

Comments (5)

Leikskólabrögð

Ein af mínum fyrstu minningum er þegar ég var í leikskóla og við vorum strákarnir (aðal kallarnir í deildinni!) að pissa í kross. Nema hvað þessi sem ég var að pissa í kross með var búinn að vera með einhver leiðindi við mig þannig að ég var búinn að ákveða fyrir krosspissið að það væri best að pissa á hann í staðinn fyrir klósettið. Skemmtilegast við þetta líka er að ég var voðalega lítið skammaður fyrir að míga yfir strákgreyið. Var kannski sleginn á puttana og búið – gott ef leikskólakerlingarnar hafi ekki bara hlegið að þessu.

Þetta rifjaðist upp fyrir mér kl 7:30 þegar ég var að skutla Grettu áleiðis í vinnuna. Ég þarf endilega að taka upp þennan gamla sið og pissa meira á fólk. Ef mér leiðist eitthvað sem það gerir, þá býð ég því að koma og pissa í kross með mér. Og svo þegar það býst síst við því, þá míg ég yfir viðkomandi like there’s no tomorrow.

Svo er ein geðveikin að taka sig  upp í vinahópnum og ættinni minni. Það eru fjandans allir að verða óléttir. Hvað í helvítinu á það að þýða? Gubba út leiðinlegum börnum hægri vinstri?

Ok, núna eiga margir (allir) eftir að hugsa að þetta sé bara einhver biturleiki í mér að “þykjast” ekki vilja krakka og að magga sé komin á aldur. Já farið þið bara og hoppið uppí rassgatið á ykkur og haldið það sem þið viljið – Mér er alveg sama!

Comments (3)

Bestu kaup í heimi

HPI MT2 18ss…Eða allavega þau skemmtilegustu. Er búinn í skólanum núna þangað til næsta haust þannig að ég er búinn að vera að leika mér aðeins með bílinn góða. Og ekki er það nú leiðinlegt skal ég ykkur segja!
Pabbi á slíkan líka, hver vill koma að leika? Aldeilis hægt að ralla á þessu.
Farinn út aftur!

Comments (3)

Mættur í skólann!

úje, seinasta prófið eftir klukkutíma og ég er mættur í skólann. Þurfti að mæta snemma af því að Margrét frekjudolla þurfti bílinn og ég sit eftir með sveittan skallann að læra fyrir viðmótshönnun.

Mjög skemmtilegt að skilgreina notkunartilvik, taka samhengisviðtöl og læra 8 gullnu reglur viðmótshönnunar. Alltsaman alveg einstaklega gefandi og enginn vafi á því að þetta eigi eftir að nýtast mér þangað til ég dey.

Over and out
Roger Rabbit

Comments (3)

Iðjuleysi er mitt millinafn

Letilíf hér kem ég!Núna eru prófin að byrja hjá mér. Ég er búinn í skólanum (seinasti kennsludagur var í gær) og fyrsta prófið er á þriðjudaginn. Ég fer í 4 próf og er búinn 19. Apríl. Eftir það ætla ég að fara ekki að vinna. Ég ætla að vera “self-employed”, sem er tilvalið. Svo ætla ég á hróarskeldu. Ég ætla pretty much ekki að gera rassgat allt sumarfríið (rúmir 4 mánuðir), nema kannski vinna í síðunum mínum og etv. opna flerii síður.

Ég er nokkuð viss um að þetta verði besta sumar í tilveru minni. Ekkert vinnurugl og vesen, bara það sem mér dettur í hug! Kannski maður leigi sér skrifstofu einhversstaðar til þess að fá “vinnufrið”. Undir venjulegum kringumstæðum væri ég reyndar mánuði lengur í skólanum að gera lokaverkefni, nema hvað ég fékk mitt annarar annar lokaverkefni metið frá tækniskólanum í Odense þannig að ég slepp við það – BÚJAKASHA!

Svo svona í lokin langaði mér að benda á myndband sem reddaði deginum hjá mér. Þetta er líklega samt ekki myndband sem þið viljið líta á í vinnunni því það er pjása í því.. Og dildo.. Og eitthvað svona sóðalegt – en totally þess virði!

Comments (2)