Feitir krakkar

Fyrst: Nei Gummi, ég er ekki að herma eftir Guðna, mig vantaði bara innblástur, og í þetta skiptið ákvað ég að sækja hann í ísbúðina 

Ég fór með Grétu um daginn í ísbúð. Svosem ekki neitt merkilegt við það nema Magga finnur staðfast í því að gera mig feitan með að fóðra mig með rjómaís og öðru feitmeti. Hinsvegar var ótrúlega viðbjóðslegur krakki þar, ca. 10 ára feit stelpa með ís sem hún sleikti like there’s no tomorrow. Ég er ekki frá því að stelpuógeðið hafi klárað ísinn á svona 2mín, þótt mikið af honum hafi reyndar endað framan í henni og í hárinu. Mamma hennar var þarna líka, en ef ég væri móðir hennar (hah!) þá hefði ég frekar gefið henni ryk en ís. Þetta krakkakvikindi vakti upp svo mikinn óhug hjá mér að ég fór ósjálfrátt að hugsa útí það hvað myndi gerast ef maður myndi stinga hana í vömbina – myndi vella út smjör? Mér þætti athyglisvert að vita það, og aldrei að vita nema ég láti það eftir mér og stingi einhverntíman einhvern feita viðbjóðskrakkann sem ég rekst á í vömbina.

Þetta minnti mig líka á það að mig langar ekki vitund í krakka. Háværir, dýrir í rekstri og venjulega leiðinlegir nema kannski í afskaplega litlu magni. Svo miðað við hvað fleiri og fleiri berjast við offitu plús fitubollugenið mitt, þá eru allar líkur á að ég myndi sitja uppi með feitan, ljótan og leiðinlegan krakka. Frekar held ég að ég set mitt sæði í klósettpappír eða klósettið frekar en að sitja uppi með einn grís og vera að drepast úr stressi, veseni og á kúpunni næstu 20 árin eða svo. Og nei – vandamálin eru ekkert búin eftir fyrstu 20 árin af lífi krakkans, en eftir það fer hann líklega að sníkja lán og allskonar svoleiðis vesen eitthvað.

Segjum nei við börnum!

2 Comments »

  1. ingo Said,

    March 31, 2006 @ 17:08

    Hættu að reyna að búa til barn og farðu að blogga

  2. Valdi Said,

    April 6, 2006 @ 5:04

    shit þetta er þá búið hjá mér………

    HEY! en það mætti tékka á að gera gat á vömbina mína, það væri rosalegt!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment