Roskilde festival 2006
Jæja, þá er það komið á hreint. Ég er á leiðinni til fyrrum heimalands míns, Danmerkur. Þó er ég ekki fluttur, heldur er ég á leiðinni á sataníska útihátið að nafni Roskilde festival sem á sér stað í bænum Hróarskeldu á hverju sumri.
Ég fer líklega til Óðinsvéa fyrst til að heilsa upp á vitleysingana þar og pína þá til að koma með mér. Stemmari mikill.
Hver ætlar að koma memm?
Gummi Said,
March 14, 2006 @ 13:31
Mér finnst að við ættum að taka eitt pókerkvöld áður en haldið verður til Roskilde Festival og drukkið frá sér allt vit og peningur!
Keli Said,
March 14, 2006 @ 23:00
Djöfull líst mér vel á það! Atli, Haukur, Kristján… áhuga? (lesa þeir commentin… síðuna..?)
Hver á chips?
Ingó Said,
March 15, 2006 @ 8:58
Allavega hef ég ekki áhuga ef þú hafðir áhuga á þvi að vita það
Keli Said,
March 15, 2006 @ 9:42
Ég spurði þig um daginn hvort þú værir eitthvað að pæla í roskilde og þú sagðir ekki… þannig að ég gerði ráð fyrir að þú værir heldur ekki að pæla í aðð fara til dk þessa helgi :>
Margrét Said,
March 15, 2006 @ 10:35
Díses ingó og keli, þið hljómið eins og táningastelpur í tilvistakreppu
ingó Said,
March 15, 2006 @ 11:19
Dííííí Magga þú ert það sem þú segir að ég sé…fjárans spegill 360° omg
Gummi Said,
March 15, 2006 @ 11:27
hahahaha….ég á náttúruleg bara þessi chips sem að ég á(greinilega) veit ekki hvort þið sættið ykkur við það? Látum bara Kristján kaupa alvöru chips af því að ég gaf honum og Nooru miða á MEW tónleika hérna um daginn ;D
Pizza
Bjór
Póker
Smá Gajol
Túnfisksalat
Gott stuff!!
Atli Said,
March 15, 2006 @ 14:04
Djöfull líst mér vel á þetta :) gætum endað svo á drykkju ludo, keypti mér um daginn í Bilka ;) skemmtilegt spil nok…
Keli Said,
March 15, 2006 @ 17:22
Shit, ég er alveg orðinn alveg heitur í klofinu og rakur í rassgatinu af spenningi!
Bring on the tuna salad!
Gummi Said,
March 15, 2006 @ 18:20
Sagði Haukur ekki annars að hann ætlaði aldrei að spila póker við mig aftur?
Keli Said,
March 16, 2006 @ 8:46
Æ hann segir svo margt… Sívælandi strákurinn :D
Haukur J Said,
March 16, 2006 @ 10:50
Fyrst ætlaði ég ekki að spila við Gumma en núna er það líka þú Keli!!!! :) Þannig að ég mæti og spila bara við hina.
Gummi Said,
March 16, 2006 @ 13:15
hahaha…en það er eitt: Þetta kvöld getur greinilega ekki farið fram heima hjá mér! Ég á bara 4 stóla :D
Haukur J Said,
March 16, 2006 @ 19:15
Getur þú ekki farið e-ð?
Gummi Said,
March 16, 2006 @ 19:18
jæja góði, á þetta að vera svona? Viltu draga spil? Hæsta spilið vinnur. Sá sem tapar situr á gólfinu!
Keli Said,
March 17, 2006 @ 7:59
Fight for my love! Fight god damnit!