Leti

Núna sit ég heima og er að gera ekki rassgat. Ég sleppti skólanum í morgun. (Reyndar til þess að gera verkefni sem ég á að skila, en whatever). Ég er ekki ennþá búinn að fá mér neitt að borða. Í gær fékk ég mér ekki að borða fyrri en um 2-leytið, og sú máltíð stóð af einum poka af minigulrótum, vegna þess að ég einfaldlega nennti ekki að fá mér neitt annað (engin megrunargeðveiki í gangi btw!) Þetta stefnir í álíka gáfaða máltíð í dag, ég er búinn að opna ísskápinn svona 5x, nema það er ekkert þar sem mig langar í eða ég nenni að gera mér. Ég er of latur til þess að fóðra sjálfan mig. Ef ég hefði verið uppi á steinöldinni eða einhverri þvíumlíkri öld, þar sem maður þarf að verða sér útum mat sjálfur, og föt o.s.frv. Þá hefði ég líklega dáið svona 7 dögum eftir að mér væri hent úr foreldrahúsum(hellum) vegna þess að ég hefði ekki nennt að veiða mér til matar. En það er kannski aðeins öðruvísi, ég held að ég væri alveg til í að fara t.d. núna út og veiða með spjóti, nema hvað að kettir eru ekki alveg nógu bragðgóðir og það er lítið annað að veiða hérna í höfuðborginni.

Sem væri reyndar ekkert slæm pæling. Borgin ætti að fylla allar tjarnir af fisk til að veiða og sleppa svolítið af hænum og beljum og svona á hverjum degi. Svo getur maður bara hlaupið út og farið að hunta þegar maður er svangur. Ég myndi t.d. taka einhverja sveðjuna úr eldhúsinu, hlaupa uppi svosem eitt lamb og skera á háls. Þannig kæmist maður aldeilis í form og væri svolítið svona “back to nature” fílíngur í þessu. – Fín pæling!

Ég þarf endilega að kynna þetta fyrir borgarstjórninni. Verst bara að hún er þéttsetin af aumingjum og iðjuleysingjum þannig að það væri álíka vel tekið í þetta og ef ég myndi bara láta duga að skrifa um það hér. Og því skrifa ég þetta hér!

Og svo að organistanum frá fáskrúfsfirði sem rekur/rak málefnin.com. Þetta litla grey fékk símhringingu frá áður nefndri Jónínu Ben þar sem hún hótaði honum öllu illu (líklega að setja ríðulykt í brauðið hans) og hann bugaðist, lét hana fá iptölur, lokaði síðunni sinni og lokaði sig inni háskælandi. Ég fæ ca. 1x í viku Cease and Decist bréf frá lögmönnum hinna og þessara, ég hef m.a. fengið frá Sony og Walt Disney þar sem þeir eru að biðja mig um að fjarlægja eitt eða annað af síðunni minni. Ég verð við þeirri ósk ef þeir geta sannað að þeir eigi umrætt efni eða hafa lagalega stoð fyrir því að biðja mig um að taka það niður og heyri ekki meira frá þeim.

Það sem þetta organistagrey var að halda uppi síðu, þar sem einhver bjáni frá eskifirði (giska ég á) póstaði *link* á þessi bréf hennar Jónínu. Og viti menn, Jónína missir þvag og hringir í organistann, hótar öllu og hann brotnar og lokar öllu. Það sem hefði verið nóg fyrir hann að gera var að fjarlægja umræddan link og hann væri lagalega laus allra saka, amk ef þetta væru bandaríkin – það er ekki komið almennilegt fordæmi á svona mál hérna, en fyrirmyndin yrði líklega sótt frá bandaríkjunum hvort sem er.

Nenni ekki að skrifa meira, dragið ykkar ályktanir sjálf og farið í rassgat.

“I did not have sexual relations with that woman!” – Bill Clinton

2 Comments »

  1. Gummi Said,

    March 11, 2006 @ 10:16

    þetta eru góðar pælingar. Ef þig langar svona mikið að fara að veiða eitthvað, af hverju verslaru þér ekki bara riffil og ferð að plaffa endur? eða svani?

    Leti er móðir allra uppfinninga….og þér datt ekkert betra í hug en poki af gulrótum…tsk, tsk, tsk.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment