Kúka fyrir skóla
Hvern hefði grunað að það væri svona indælt að kúka fyrir skólann.
Þannig er nú mál með vexti að ég skutlaði möggu áleiðis í vinnuna í morgun. Svo þegar ég kom heim kl 20mín í 8 og klukkutími í að ég átti að mæta í skólann, fór í tölvuna svona – like I do… Ekkert í frásögur færandi svosem. Hinsvegar varð mér skyndilega brátt í brók og þurfti að kúka. Núna er ég ekki þekktur fyrir að gera mikið á morgnana, hvað þá að taka stórvirki eins og klósettferð mér fyrir hendur svona snemma morguns. En viti menn, það var bara ánægjulegt að sitja á dollunni um áttaleytið með ferðatölvuna að lesa nýjustu fréttir og spjalla við fólk á MSN. Ég þarf endilega að gera meira af þessu, vakna eldsnemma á morgnana til að bomma allhressilega fyrir skólann. Ég er ekki frá því að andinn sé svona hátt uppi hjá mér í dag einmitt vegna þessarar klósettferðar!
Og svo yfir í allt annað, gleraugu.
Ég hata fjandans gleraugu. Djöfull finnst mér þetta vera óþolandi fyrirbæri. Fyrir um mánuði tóku augun á mér uppá því að fíla ekki linsurnar mínar og ég fékk einhverskonar ofnæmi fyrir þeim. Þannig að ég þurfti að taka upp gleraugnanotkun. Ég hef ekki verið þekktur fyrir að drulla yfir fólk með gleraugu (foureyes), en fjandinn hafi það, mér finnst ég miklu minni og lélegri maður eftir að ég fór að vera alltaf með gleraugun á nefinu. Ég get varla farið út í úrkomu útaf því að gleraugun verða skítug. Ég þarf sífellt að vera að skrúbba skít af þeim (ryk og fingraför t.d.). Ég get ekki spilað íþróttir með þau (hah, nú hef ég afsökun fyrir að fara ekki í íþróttir), heldur þarf ég að setja upp linsur til þess að sjá boltann eða hvað það sem maður á nú að sjá í viðkomandi íþrótt.
Bottom line:
- Það er gott að kúka á morgnana
- Gleraugu gera mann að minni manni
Og svo til að þóknast frænku minni;
“Everybody makes mistakes, that’s why they put erasers on pencils” – Lenny, Simpsons
Tuls.. Said,
February 27, 2006 @ 18:01
Mér finnst þú svo myndó með gleraugun….*faðm*