Dæmatímar – Browsetímar

Já, ég verð seint talinn duglegur námsmaður. Núna sit ég í dæmatíma og á víst að vera að gera forrit sem leitar í textaskrám… Nei, það geri ég sko ekki! Frekar browsa ég á wikipedia og les um Aral Sea. Skelfilegt hvað sovétmenn hugsuðu stutt og eru búnir að skemma mikla náttúruauðlind, ha? ha? haaa?

Wikipedia er líklega eitt það mesta nammi sem ég kemst í. Þegar ég rekst á einhverja grein þar, þá les ég hana… Svo klikka ég á link í henni og les næstu grein… Og svo koll af kolli, svo er tíminn eða jafnvel dagurinn skyndilega búinn og ég ekki búinn að gera nokkurn skapaðan hlut! En það væri nú orðum aukið að þetta væri ónothæft sem ég læri, því nú get ég talað um fleiri hluti eins og ég viti eitthvað um þá! Alltaf skemmtilegt að geta komið með blákaldar staðreyndir til þess að skíta yfir t.d. heimskar konur bjána sem eru að reyna að rökræða við mig.

Nú svo get ég líka hafið gáfnalevelið á þessu bloggi upp um nokkra metra með því að setja quote í enda allra pistla. Hér hefst hefðin, hér byrjar gáfnahavaríið. (Það er mjög gott að búa til orð sem enginn skilur og þykjast vera betri en viðkomandi útaf því að maður veit hvað það þýðir, passaðu bara að orðið líti út fyrir og hljómi eins og alvöru orð. They’ll be none the wiser!)

“Never argue with an idiot. He will drag you down to his level and beat you with experience”

1 Comment »

  1. Haukur J Said,

    February 16, 2006 @ 17:31

    Wikipedia er með því betra á netinu….fyrir náttúrulega utan allt klámið!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment