Better choice
Það er sífellt verið að auglýsa þetta kjaftæði í sjónvarpinu. Auðvitað varð ég forvitinn og skoðaði þetta í nettó um daginn, það voru fjandans allir að kaupa þetta HOLLA HNOSSGÆTI, fullar körfur og heil bretti af þessu útum alla búð. Svo kíkti ég á einn svona kassa til að sjá hve ofsalega heilsusamlegt þetta er.
Þetta er ca. jafn heilsusamlegt og snickers. Það eru eitthvað yfir 70 grömm af kolvetnum (rúmlega 7grömmum meira en í 100g af snickers) í þessu, þar af 40 grömm af hreinum sykri. Svo má heldur ekki gleyma því að það eru 16 grömm af fitu í þessu.
Líka fyndið að í auglýsingunni er alltaf einhver kerling þokkalega góð með sig að fá sér svona þegar vinnufélagar hennar eru að háma í sig vínarbrauð. Hún heldur að hún sé að verða grönn á því að éta þetta, á meðan hinir éta eitthvað sem er svo miklu betra, og alveg örugglega miklu hollara.
Hvernig í fjandanum er hægt að auglýsa eitthvað svona rosalega langt frá sannleikanum? Má maður bara fara að auglýsa snickers sem heilsufæði og segja að maður eigi að fá sér snickers frekar en gulrót útaf því að það sé hollara? (tjah, eða allavega gefa það í skyn að það sé hollara..)
Auglýsingar, passið ykkur á þeim!
Steinn Said,
February 15, 2006 @ 1:35
Jess, 70g af kolvetnum, 16g af fitu … nema þetta sé frostþurrkað þá er varla neitt prótein í þessu hehe
Keli Said,
February 15, 2006 @ 8:10
Það eru 7.5g af próteini… SANNKALLAÐUR heilsubiti!
Gummi Said,
February 15, 2006 @ 10:09
“Það eru eitthvað yfir 70 grömm af kolvetnum”….af hvað mörgum grömmum?
Keli Said,
February 15, 2006 @ 10:22
70 grömm af 100.
Gummi Said,
February 15, 2006 @ 12:10
nú jæja….
svenni Said,
February 15, 2006 @ 19:24
ég held þú verðir að hringja í meinhornið og kvarta