Pæling…
Hversvegna gera stjórnvöld ekki nokkra sjálfsagða hluti sem minnka gróðurhúsalofttegundir.
Til dæmis væri hægt að gera þessa hluti.. svona til að byrja með
- Hafa standard 10% matarolíu í öllu díseleldsneyti
- Hafa “verðlaun” í formi lægri skatta á umhverfisvænni ökutæki (hybrid og vetnis t.d.)
1. Öll díselökutæki geta auðveldlega keyrt á matarolíu. Þessvegna 100% matarolíu. Hinsvegar ef matarolíuinnihaldið er hátt, þá verður eldsneytið of þykkt og verður að hita upp áður en það fer í vélina. Einnig ef matarolían er yfir 40% er erfiðara að keyra um um veturna því eldsneytið verður of þykkt í kuldanum. (Og þarf þá að forhita það)
Hinsvegar er ekkert sem vegur á móti því að setja 10-30% matarolíu í standard díselolíu. Við þetta verður olían ódýrari, ökutækið sparneytnara, og útblásturinn umhverfisvænni (minni gróðurhúsalofttegundir). Margir umhverfisplebbar eru farnir að gera þetta í meðal annars Bretlandi og Þýskalandi og spara einhverja formúgu á því og úr pústinu kemur kleinuhringja/djúpsteikingarlykt. Það er komin töluverð reynsla á þetta og margir bílar búnir að keyra yfir 100þús kílómetra á þessu án vandræða.
Þessvegna spyr ég:
Hversvegna er ekki bætt örlítilli matarolíu standard í á dælunum?
2. Hybrid/umhverfisvænir bílar kosta meira en venjulegir bílar, af hverju er fólk ekki verðlaunað fyrir að kaupa svoleiðis bíla? Til dæmis í formi skattaafsláttar á innflutningi. Ég er ekki alveg viss, en mér skilst að það sé eitthvað þessu líkt við lýði í Bandaríkjunum.
Ég var með einhverja fleiri punkta þegar ég var að pæla í þessu í dag þannig að þeta er eitthvað illa rökstutt hjá mér núna, en látum það duga.
Það eru til margir svona kostir, sem kosta ekkert og, að mér finnst eru alveg sjálfsagðir..