Gyllinæð

Djöfull er ég fjandans viss um að ég sé kominn með einhverja drulludjúsí gyllinæð. Mér klæjar stundum svo mikið í rassgatið að það eina sem dugir á það er að taka einn duglegan Óla á þetta! Ætli ég þurfi ekki bara að fara að sitja minna á klósettinu þegar ég kúka… Ég er nefnilega búinn að bæta við það uppá síðkastið, farinn að taka með mér tölvuna og svona. Helvítis gyllinæðin.. Eða gyllinæðið eins og Gollum kallar þetta.

Hver ætlar svo að gefa mér svona kleinuhring til að sitja á í afmælisgjöf…? Það eru reyndar 8 mánuðir í afmælið, en þetta ætti einmitt að vera orðið drulludjúsí þá!

Og áður en einhver ætlar að vera sniðugur og segja mér að fara til læknis, þá drepst ég frekar úr gyllinæð heldur en það! Ég verð kominn með svo stóra gyllinæð að allir eiga eftir að halda að ég sé með melónu í brókunum. Svo einn daginn sest ég niður of harkalega og hún springur. Þannig missi ég 98% blóðsins í líkamanum á 5sek, og steindrepst í sætinu. Svo gæti DV skrifað um mig á forsíðunni; “Klámkóngur drepst úr gyllinæð”. Vinsamlegast skrifið samt eitthvað fallegt um mig ef þið ætlið að skrifa eitthvað at all.

4 Comments »

  1. Gummi Said,

    January 24, 2006 @ 15:34

    Ég…eh…það er…sko….nei ég get það ekki!

  2. Kebab Bob Said,

    January 25, 2006 @ 15:25

    Geturðu ekki hvað? :)

    Sest niður?

    Ekki ég heldur!

  3. Gummi Said,

    January 25, 2006 @ 16:22

    …skrifað eitthvað fallegt um þig :D

  4. ingo Said,

    January 26, 2006 @ 16:03

    enda er gyllinæðin æði…gyllinæði…Gyllin Gæði?Gyllin gæði eru gyllinæðið í næði

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment