Stórmerkar fregnir

Jújú, strákurinn (ok, og stelpan) er búinn að versla sér bíl! Gullfallega Toyota Corolla ‘98, píkusegul frá helvíti og lagleg mjög. Blá að lit með öllu sem hugurinn girnist. Gollum sagði að ég þyrfti að pósta mynd af henni hérna en það verður sennilega að bíða betri tíma þar sem myndavélin mín er heima og ég er í Kambaselinu að passa krakkagrísinn sem systir mín er.
Helvíti dýrir samt svona bílar… Mér finnst að þeir mættu nú aðeins fara að selja manni þetta ódýrar!

Stay tuned, en ég er að leggja lokahönd á gríðarlegan pistil um kvilla sem er farinn að hrjá mig og lýsir sér í sífelldum kláða í kúkagatinu. Jebb, ég er með kláðamaur í skítakögglunum!

13 Comments »

  1. Gummi Said,

    January 20, 2006 @ 19:13

    Til hamingju með brakið! Geri sterklega ráð fyrir því það detti í sundur innan tíðar með þinni heppni…

  2. Keli Said,

    January 20, 2006 @ 23:59

    Já, eða það verði klesst á mig og brakið skemmt.

    Það verður allavega skemmtilegt að vera á honum þangað til!

  3. Gummi Said,

    January 21, 2006 @ 10:34

    Hvað var verðið á svona sjálfrennireið?

  4. Keli Said,

    January 21, 2006 @ 11:17

    420þús! Rándýrar þessar toyotudruslur, en það vilja allir meina að þetta bili ekki, þannig að ég treysti því bara!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment