Skóli

Ég er ekki frá því að ég hafi illan bifur á byrjuninni minni í þessum merka skóla. Ég er ekki viss um að ég sé “skólaefni”, ég er svo húðlatur. Ég er þó ekki búinn að skrópa neitt, og það stendur ekki til, þannig að þetta reddast ef til vill, right? Svaf reyndar skóladaginn af mér á mánudaginn, en það var eiginlega Margréti að kenna vegna þess að hún vakti mig ekki nógu vel þegar hún fór í vinnuna. Það hlýtur hver maður að sjá að ég get ekki borið ábyrgð á því að ég vakni, ég þarf nú að hugsa um nógu fjandans mikið nú þegar!

Nú spyr maður sig hinsvegar: Ætlar þessi bloggveisla aldrei að enda? Tjah, þegar bloggin fara að minnka, þá getið þið gert ráð fyrir því að ég hafi fallið úr skólanum. Eða eitthvað, kannski letin verði blogginu að bana bara eins og venjulega, maður veit aldrei!

Annars er ég núna með nokkur word skjöl opin og er að dunda mér að fylla út nauðsynleg form og skýrslur til þess að geta stofnað “leenks ehf”. Mér datt ekkert betra nafn í hug, hverjum er líka ekki fjandans sama um hvað helvítis fyrirtækið heiti?! Veit samt ekki alveg af hverju ég er að þessu, mér er meinilla við helvítis skattinn og það að þeir þurfi endilega að taka af mér megnið af tekjunum mínum. Ekki hjálpaði íslenska ríkið mér neitt með þetta – nema þó kannski að gera mig læsan. Allavega kenndu íslenskar menntastofnanir mér ekki þeta sem ég er búinn að vera að nota til að koma síðunni í gang, svo mikið er víst. Ég fékk ekki einusinni innblástur hérna, hann kom allur frá dönsku sumari! Aftur á móti er mun betra að borga skatt hérna en í Danmörku, danirnir eru ennþá algjörar baunir með svona skattavesen! Hérna slepp ég með að borga 27% skatt af laununum mínum ef ég tek þau í gegnum fyrirtækið og borga mér svo arð af því. 17% á tekjurnar inní fyrirtækið, og svo 10% fjármagnstekjuskattur (held að þetta heiti það). Ef ég væri í danmörku þá væri ég líklega að borga rúmlega 50% af þessu helvíti. Djöfulsins bananalýðveldi, ekki nema von að danir séu latir upp til hópa, þeir eru slegnir með skítugri bleyju í hvert skipti sem þeir taka yfirvinnutíma!

Jæja, ég er hættur þessu rambli. 2 stig fyrir þann sem las þetta allt!

11 Comments »

  1. Anonymous Said,

    January 18, 2006 @ 22:35

    2 stig fyrir mig….ég vildi óska að þessir bjánar þar sem ég er að vinna núna gætu verið aðeins latari, alltof duglegir eitthvað við að þramma fram og til baka um rúmlega 5000 fermetra lager. Ég fór á klósettið í dag, settist niður og gerði ekki neitt af því að ég nennti ekki að vera þarna. Ef ég væri með fasta vinnu þarna væri ég löngu búinn að kveikja í þessu helvíti.

  2. Gummi Said,

    January 18, 2006 @ 22:36

    eh…jájá, þetta átti semsagt að vera ég.

  3. Keli Said,

    January 18, 2006 @ 22:52

    Það er einmitt það sem ég gerði þegar ég var í vikar – Ég þóttist fara að kúka eins oft og ég gat komist upp með það… Og sat á klósettinu í amk 30mín í hvert skipti. Vinnan er fjandi slæm þegar tíminn líður hraðar þegar maður situr á dollunni (án afþreyingar eins og blaðs og þannig) frekar en að vera að vinna.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment