Almenningssamgöngur eru hættulegar
Já, það er ekkert flóknara en það. Strætóar eru drápstól, og það hefur sýnt sig oft og mörgum sinnum.
Ég er einmitt farinn að nota strætisvagna Reykjarvíkurborgar ótæpilega eftir að óletta geðsýkikonan klessti á mig. Mér finnst það notarlegt mjög. Maður röltir í rólegheitunum kl 20mín í 8 á morgnana (7:40) með ipod í eyrum og tyllir sér í heitan vagninn. Eftir 25mín er maður svo sestur í skólastofuna, ferskur eftir smávegis útiveru, og án alls pirring útí aðra ökumenn eða yfir því að hafa þurft að moka af bílnum sínum. Já, ég veit ekki alveg af hverju fólk kvartar svona mikið yfir þessu, mér finnst þetta alveg allt í lagi. Ég veit reyndar ekki alveg hvernig mér á eftir að finnast þetta ef ég þyrfti *alltaf* að nota strætó, en allavega er þetta í góðu lagi á meðan ég á ekki bíl.
Hvernig bíl ætti maður annars að fá sér? Flestir virðast segja Toyota, en það er svo drullukuntudýrt að það er ekki fyrir neinn nema ættingja Jóns Ásgeirs aðf á sér svoleiðis… Helvítis lúxusbifreiðar, ekkert annað!
Annars ætti maður bara að skítamixa bíldrusluna bara sem var klesst á. Skella einhverjum kerruljósum á hann, festa stuðarann með nokkrum boltum og skrölta á honum fram að skoðun, henda svo bara í pressuna og láta það gott heita. Versla svo bara einhvern sæmilegan bíl eftir það. Hverjum er líka ekki fjandans sama hvernig bíl maður er á, það er ekki eins og maður eyði meira en 45mín eða svo í þessu á dag.. Peningaeyðsla segi ég!
Atli Said,
January 14, 2006 @ 19:19
Ég sakna flugubjórsins hvað mest… hey fáðu þér Reanult, fínir bílar og á nokkuð góðu verði. Svo er Skoda fínar tíkur.
ingó Said,
January 16, 2006 @ 10:27
Mundu að þú færð 15000kall fyrir að henda helvítis bílnum. En ekki hlusta á Atla sprengiræpu..Ruuunó er fjandans óþverri en afhverju ertu að pæla í því?´Notaðu bara strætó að eilífu fyrst það er svo drullufrábært.
Guðni Said,
January 16, 2006 @ 12:41
Stórhættulegt að aka um á Toyotum – maður fær ekkert respekt…
Gætum reyndar skoðað þá hugmynd að ég taki þig af og til með í skólann – erum í sama hverfi þannig lagað…
Keli Said,
January 16, 2006 @ 13:11
Jámm, ég fæ 15þús fyrir það, ég er reyndar með eitt annað í huga áður en ég hendi honum í pressuna, ég fékk nafn hjá einhverjum karli sem vantar svona bíl í varahluti, gæti verið að ég fengi smá klink fyrir hann þar.
“Notaðu bara strætó að eilífu fyrst það er svo drullufrábært”
Og þá quota ég sjálfan mig:
“Ég veit reyndar ekki alveg hvernig mér á eftir að finnast þetta ef ég þyrfti *alltaf* að nota strætó, en allavega er þetta í góðu lagi á meðan ég á ekki bíl.”
Renault, ég hef einmitt heyrt svo mikið um bilanavesen á þeim..
ingó Said,
January 16, 2006 @ 14:14
já fyrst að þetta er allt í lagi meðan þú átt ekki bíl hlýtur það að þjóna litlum tilgangi að kaupa bíl fyrst þú ert svo hamingjusamur með grálúsugum almúganum
Keli Said,
January 17, 2006 @ 9:53
Þegar ég skrifaði þennan pistil var ég búinn að ákveða að kaupa bíl á næstu vikum… þangað til væri prýðilegt að nota strætó.