Ræpa

Hvern hefði grunað það, ég fékk ræpu. Ég er farinn að fá alveg reglulega niðurgang. Einusinni fékk ég aldrei drullu. Ég er ekki búinn að finna blóraböggulinn, en fjandinn hafi það, hann skal ég finna!

Grunar reyndar asíska matargerð í þetta skiptið, en það kemur allavega í ljós fljótlega því ég var að enda við að sporðrenna afgöngunum síðan á laugardaginn. Sumir myndu etv. segja að það væri ekki smart move að éta mat sem hefði hugsanlega gefið mér ræpu 2 dögum áður. Hinsvegar vil ég meina að það sé einmitt smart move, því núna er ég ónæmur fyrir því sem olli drullunni seinast. Einnig get ég bara ekki hent mat, ég fer alltaf að hugsa um feitu börnin í afríku sem eru svo svöng, en samt með maga sem slær konu komna 7mánuði á leið auðveldlega út. Skil ekki hvað þessir krakkar eru að væla annars, þeir geta étið þessar flugur sem eru alltaf á þeim! Aldrei hefur smávegis flugusnakk skaðað neinn!

Skólinn byrjaði í dag. Stemmarinn var langt yfir meðallagi um 8leytið í morgun þegar ég mætti á skriftstofuna og spurði hvernig ég kæmist á netið. Svo þegar það var komið á hreint spurði ég hvort ég ætti ekki að vera í einhverjum tíma? Neinei, enginn tími fyrr en 9, en bjánarnir voru með kolvitlausa stundartöflu á netinu og stundarskráin sem maður á að fara eftir, þessi á innranetinu var tóm hjá mér. Skemmtilegt svona vesen. Takk.

Gervimaðurinn bílífi

13 Comments »

  1. Haukur J Said,

    January 10, 2006 @ 10:56

    Í hvaða skóla verstu að byrja?

  2. Keli Said,

    January 10, 2006 @ 15:09

    Háskólanum í Reykjavík…

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment