Búmmsjakalakalakalaaaa!
Jebb, strákurinn er mættur. Fékk pizzu áðan. Hún var með áleggi. Svo tók ég hana upp, nagaði smá bita af, tuggði og setti svo í magann með nokkrum vel völdum vöðvahreyfingum í vélindanu.
Eins og gefur að líta þá hafa seinustu dagarnir verið gífurlega spennandi hjá mér.
Reyndar er skólinn að byrja á mánudaginn. Það væri undir venjulegum kringumstæðum fínasta mál, nema hvað ég hef ekki hugmynd um hvar ég á að mæta, hvernig ég á að mæta, í hvað ég á að mæta og hvað ég verð lengi. Spennandi fjandi og fjári það!
Vill einhver kaupa ‘98 hyundai accent? Aðeins ein lítil beygla á honum!