Smávegis um megrunaraðferðir

Ég var að íhuga aðeins megrunaraðferðir – rétt eins og megnið af fólkinu á þessum skítaklaka virðist vera að gera. Eins og svo oft áður þá datt mér í hug sníkjudýr; nánar tiltekið ormar sem lifa í þörmum fólks.

Þeir virðast vera tilvaldir í þetta megrunarstarf, því þegar þeir eru orðnir nógu stórir, þá stela þeir næstum allri næringu úr matnum frá manni, án þess að gefa líkamanum tækifæri til að vinna úr henni og gera fitu. Einnig eru þeir að mestu aukakvillalausir – allavega til að byrja með.

Hljómar vel, ekki satt?

Rangt.

Ég fletti þessu aðeins betur upp, og viti menn, þetta eru víst skepnur sem er víst ekkert svo þæginlegt að lifa með – Þetta veldur víst allskonar aukakvillum svosem harðlífi, niðurgangi, kláða, útbrotum, bloating, veikt ónæmiskerfi o.fl.

Og þar hafiði það: sníkjudýr eru ekki góð megrunaraðferð nema þið viljið þjást.

14 Comments »

  1. ingó Said,

    January 5, 2006 @ 15:47

    djöfull er ég skítánægður með þetta bloggátak. Í sambandi við áreksturinn þá skal ég glaður bera ljúgvitni fyrir þig.
    Konur burt úr bílstjórasætinu fyrir árið 2007. Tökum vini okkar í saudi-arabiu til fyrirmyndar og bönnum konum að aka bílum og stofna lífi fólks í hættu.

    Ég veit ekki hvort er verra..sníkjdýr eða fita.

  2. Keli Said,

    January 5, 2006 @ 17:53

    Já, ljúgvitni væri vel þegið. Einnig væri vel þegið ef þú færir bara til hennar og segðir henni að hringja í tryggingafélagið og segja að hún hafi verið með stefnuljós.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment