Dótakassauppfærsla
Jæja, ég var að fá nýtt dót. Þessi glæsilega þyrla kom til mín seinasta þriðjudag. Og fjandinn hafi það hvað þetta er sniðugt, ekkert sérstaklega erfitt að fljúga þessu (jú ok svolítið) og stórskemmtilegt að leika sér með þetta.
Reyndar er ég orðinn kexruglaður í þessu fjarstýrða rugli. Ég er að verða búinn að koma fjarstýrðri flugvél í lag sem pabbi keypti einhverntíman, og svo á ég núna þessa þyrlu og fyrir ári keypti ég bílinn góða. Ekkert að því svosem, þar sem þetta eru alveg æðislegar græjur og endalaus hamingja að leika sér með þetta. Aldrei fékk maður svona góðar græjur þegar maður var ungur að árum.
Þessi þyrla er heldur ekki svo dýr, það má bara vel vera að maður athugi að selja þetta hérna, perfect fyrir dellukalla og tækjaóða eins og mig. Ég er þess fullviss að það séu fleiri en bara ég á þessu landi sem eru til í að eiga svona græju. Væruð þið ekki til í svona? Hvað mynduði vilja borga fyrir svona, og hvað haldiði að þetta kosti?
Annars var ég úti að éta. Fór með Grétu á Ask, hún fékk sér sjávarréttasull og ég fékk mér nautalundir. Medium rare er eina vitið, helst smávegis hrátt í miðjunni, þá er þetta meyrt og baular etv. smávegis þegar maður stingur í steikina í fyrstu 2-3 skiptin. Þá fyrst er þetta fullorðins. Askur er annars pussufínn staður þannig séð, góður matur og ekkert alltof dýrt (helv. nautalundin er frekar dýr reyndar). Reyndar fékk ég ekki nógu góðan bita, það var ein djúsí sin í lufsunni. Mig grunar að helvítis kokkarnir hafi látið mig fá enda eða einhvern fjandann.