Ástkona mín er feeder
Já, ég er ekki frá því að henni Margréti hafi tekist að koma á mig allavega 2kg síðan ég kom í sveitina í gær. Hún er sífellt að bjóða mér osta, smákökur, snarl og annað feitmeti.
Annars er fjandans ekkert að frétta, ég fékk jólagjafir, það var klesst á mig og ýmis annar hressleiki. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er einkar laginn við að klessukeyra bíla, og kenni ég tölvuleikjunum þar um, sem eru auðvitað sponsoraðir af satani sjálfum og undirmönnum hans.
Gjafirnar voru frekar fátæklegar þetta árið fyrir utan úlpu og verkfærakassa, en flestar gjafirnar voru stílaðar á Margréti eða voru bara í búið. Og það að fá pakka sem er í búið er töluvert verra en að fá mjúkan eða engan pakka!
Skrifa ef til vill meira þegar mér dettur í hug, en á meðan skuliði hugsa vel til mín, fara vel með náungann og segja mæðrum ykkar hve vænt ykkur þykir um þær.
OVER AND OUT
Kebab Bob signing out!