Grillaður fiskur

Grillaður fiskur er það eina sem ég fæ í matinn. Ég fékk grillaðan fisk 4x í seinustu viku, 1x so far í þessari viku. Hingað til hef ég fengið steinbít, ýsu, þorsk, rauðsprettu, kola, lax og eitthvað aðeins meira, mjög spennandi, ég fæ ekki nóg af fisk. Fljótlega verð ég kominn með tálkn og magga þarf að skvetta á mig reglulega svo ég einfaldlega drepist ekki.

Svo er ferskleiki langt undir meðallagi hérna í vinnunni, ég er svo sybbinn að það nær engri átt. Var 1/2klst seinni í vinnuna en venjulega og er búinn að gera óttalega lítið í dag. Ég á víst að vera að forrita hérna, en ég dunda mér aðallega í síðunni minni og spjallinu á henni sem ég setti upp um helgina. Ekki slæmt annars, fæ fínan pening í vasann fyrir þetta.
Jú svo er ég kannski búinn að forrita eitthvað örlítið, en það tekur því vart að nefna það, hver nennir annars að lesa hvurn djöfulinn ég er búinn að vera vinna við? Tjah, ég bara spyr!

2 vikur eftir af Íslandsferðinni í þetta skiptið, 3 vikur búnar. Bíð nokkuð spenntur eftir að komast til Danmerkur þar sem alltaf virðist vera sól og hiti. Það eru búnir að vera 2 góðir dagar hérna á klakanum síðan ég kom, og báða dagana hef ég verið að vinna. Og auðvitað hafa helgarnar verið blautar og fremur leiðinlegar.

Það fer einnig hver að verða seinastur að bjóða mér í ölvunarkvöld með sér… og alls óvíst hvort ég vilji koma þar sem ég þurfti að minna fólk á það að ég væri til… Bölvuð fífl og dusilmenni. Komið hérna á síðuna, hámið bandvíddina og tætið upp síðuna á skítugum skónum en getið svo ekki einusinni þakkað fyrir ykkur með því að bjóða mér í útilegu eða annars konar fyllerí. Tjah nema kannski minn ástkæri frændi gummi, sem heldur betur stóð fyrir sínu og bauð mér upp á all hrikalegt ælu fisherman harboe fyllerí um seinustu helgi, takk fyrir það.

Já, og svo er mér líka mál að kúka, en klósettið er jafnvel enn verra farið eftir þessa helgi en seinustu, þannig að ég læt það bíða betri tíma… eða kúka á mig, sem ég tel vera mun skárra og hreinlegra en að setjast á klósettið hérna.

5 Comments »

  1. Gummi Said,

    July 18, 2005 @ 14:28

    Kallinn kann sko að gúbba…og kellinginn hans reyndar líka! Við erum svo samræmd, ég í baðið og hún á klósettið(N.B. ekki nálægt því að hitta oní það, sem sagt á það!) sem er náttúrulega bara hressandi. Mér skilst að það sé eitthvað shindig um helgina sem að ég var bara ekkert látinn vita af!?? Hvað á það að þýða að láta Jónas vera að segja mér svona hluti? Gengur ekki…hver heitir annars Jónas!?!?

  2. Keli Said,

    July 18, 2005 @ 16:27

    Hvernig á maður að muna svona, mér var sagt þetta þegar ég var svínölvaður sjálfur… Ég var bara að komast að þessu núna :D

  3. Haukur J Said,

    July 18, 2005 @ 20:50

    En hvernig er svo að kúka öllum þessum fiski. Er det ikke blød og vidunderlig( vidunderlig = wonderfull… ordbog hehe reddar öllur hérna í DK

  4. Guðni Said,

    July 19, 2005 @ 0:17

    “Helgarnar hafa verið blautar og leiðinlegar…”

    Hjá mér hafa Helgurnar verið blautar og leiðinlegar….

    En annars virðist ég hafa verið með réttu ráði á þessum tímapunkti í gubb-veislunni hans Gumma, þegar Tulla ákvað af hvatvísi sinni að bjóða okkur heim til sín á laugardag.

    Eða var það föstudag????

  5. Keli Said,

    July 19, 2005 @ 12:10

    Ég hef eiginlega ekki hugmynd um hvort það var föstudagur eða laugardagur… Spurning um að drulla smá í commentin á blogginu hennar og spyrja í leiðinni?

    Kúkurinn hefur látið bíða eftir sér… Mig grunar að próteinið allt úr fisknum sé að húða þarmana og stífla þannig að ég get ekki kúkað, og hef ekki kúkað síðan á sunnudaginn held ég..

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment