Súrleiki í hámarki
Skemmtilegt þetta, og fallegt mjög. Þetta er eitthvað myndband með Aphex Twin, falleg ballaða sem myndi passa vel í brekkusönginn á þjóðhátíð í sumar… Maður veit aldrei, kannski tekur Árni Johnsen karlinn þennan fallega slagara á kassagítarinn, það væri óskandi. Ekki það að mér sé ekki sama, því eigi fer ég á þessa skítahátíð sem þjóðhátíð er. Ég er ekki fífl.
Mér hefur verið bent á að það vanti myndir á bloggið mitt, Seinasta mynd er núna að detta út af listanum, svo langt er síðan ég setti mynd inn.. HRÆÐILEGT. Nenni ekki að finna mynd núna.
Ég er svo friggin þreyttur að það hálfa væri fjandans nóg. Samt ekkert sem vekur mann betur en bíltúr í hveragerði í funheitum bíl. Það má segja að það sé eins og köld sturta, maður vaknar undir eins og verði hress sem ljón. Svo mætti ég í vinnuna og allt fór niðurávið… (niðrávið? niðurvið?). SYBBINN NÚNA.
Gerði aldeilis mikið í gær, mætti ferskur í vinnuna, fór svo heim, keyrði fjarstýrða bílinn minn smá þangað til að mér tókst að brjóta eitt stykki á honum. Svo fékk ég ís. Svo talaði ég örlítið í símann. Svo bara fór ég að sofa!
Langar líka að minnast á eitt. Um helgina var ég í sveitinni eins og kom fram hérna aðeins neðar. Fínt að vera í sveitinni, fá volga beljumjólk, BEINT ÚR SPENANUM, éta kálfaheila og ég veit ekki hvað og hvað. En það var annað sem er aðalmálið. Það er leikur í leikjastöð númer 2, sem heitir singstar… eða popstar… eitthvað þannig allavega, gildir einu. Þar komst ég að hinum hryllilega sannleika að ég held ekki lagi, er falskur og get ekki haldið tóntegund. Ég gafst upp eftir ca. 10 sek af leiknum, fór í fússi inná bað, læsti að mér og ætlaði að drekkja mér í vaskinum. Það gekk þó ekki þar sem ég fann ekki tappann í vaskinn. Kannski næst.
Gummi Said,
July 6, 2005 @ 13:50
Það er nefnilega alveg hrikalegt að láta plata sig í þessa singstar vitleysu! Ég stórefast um að nokkur hæna geti haldið lagi í þessu kjaftæði, þannig að bíddu með að drekkja þér þangað til ég er búinn að sanna þetta. Eða leyfðu mér allavega að horfá á þig gera það!!