Grillaður fiskur er það eina sem ég fæ í matinn. Ég fékk grillaðan fisk 4x í seinustu viku, 1x so far í þessari viku. Hingað til hef ég fengið steinbít, ýsu, þorsk, rauðsprettu, kola, lax og eitthvað aðeins meira, mjög spennandi, ég fæ ekki nóg af fisk. Fljótlega verð ég kominn með tálkn og magga þarf að skvetta á mig reglulega svo ég einfaldlega drepist ekki.
Svo er ferskleiki langt undir meðallagi hérna í vinnunni, ég er svo sybbinn að það nær engri átt. Var 1/2klst seinni í vinnuna en venjulega og er búinn að gera óttalega lítið í dag. Ég á víst að vera að forrita hérna, en ég dunda mér aðallega í síðunni minni og spjallinu á henni sem ég setti upp um helgina. Ekki slæmt annars, fæ fínan pening í vasann fyrir þetta.
Jú svo er ég kannski búinn að forrita eitthvað örlítið, en það tekur því vart að nefna það, hver nennir annars að lesa hvurn djöfulinn ég er búinn að vera vinna við? Tjah, ég bara spyr!
2 vikur eftir af Íslandsferðinni í þetta skiptið, 3 vikur búnar. Bíð nokkuð spenntur eftir að komast til Danmerkur þar sem alltaf virðist vera sól og hiti. Það eru búnir að vera 2 góðir dagar hérna á klakanum síðan ég kom, og báða dagana hef ég verið að vinna. Og auðvitað hafa helgarnar verið blautar og fremur leiðinlegar.
Það fer einnig hver að verða seinastur að bjóða mér í ölvunarkvöld með sér… og alls óvíst hvort ég vilji koma þar sem ég þurfti að minna fólk á það að ég væri til… Bölvuð fífl og dusilmenni. Komið hérna á síðuna, hámið bandvíddina og tætið upp síðuna á skítugum skónum en getið svo ekki einusinni þakkað fyrir ykkur með því að bjóða mér í útilegu eða annars konar fyllerí. Tjah nema kannski minn ástkæri frændi gummi, sem heldur betur stóð fyrir sínu og bauð mér upp á all hrikalegt ælu fisherman harboe fyllerí um seinustu helgi, takk fyrir það.
Já, og svo er mér líka mál að kúka, en klósettið er jafnvel enn verra farið eftir þessa helgi en seinustu, þannig að ég læt það bíða betri tíma… eða kúka á mig, sem ég tel vera mun skárra og hreinlegra en að setjast á klósettið hérna.