Enn stríðir pósturinn

Jæja… Ég fékk bílinn loksins á þriðjudaginn. Sveinninn ljúfi keyrði mig í óbyggðir til þess að sækja helvítis pakkann sökum þess að póstburðarmennirnir geta ekki fundið hvar ég á heima. Læt mig svosem hafa það. Fór svo spenntur heim til þess að setja bílinn saman og eyddi góðum 14klst í það. Nei auðvitað vantaði einn part þannig að ég gat ekki klárað bílinn. Hann var sendur á miðvikudaginn frá bretlandi en er samt ekki enn kominn. Bölvaðir fjandans póstburðarmenn, það þarf einhver að flengja þá og refsa. Ofsalega leiðinlegt að vera kominn með bílfjandann og þurfa að bíða eftir þessu.
Á föstudaginn var grillað. Sveinn, Golli, Nonni og kvinnur mættu í víkingaspil, fótboltadestruction, hvítlauksát og grill. Hressandi mjög en fólk eitthvað sybbið (Eða lamað af greddu), þannig að það fór heim til að kúra eitthvað fyrir miðnætti. Ágætt svosem, mér líkar hvorteðer ekkert vel við þetta skítapakk, má það til fjandans fara fyrir mér. Má búast við að helvíti frjósi áður en þeim verður boðinn jeltsín vodki aftur.
Svo fékk ég pizzu í gær. Það er þó ekki í frásögur færandi nema að helvítis pizzan var húðuð með chili. Ég bað um *smá* chili, en helvítis mörðurinn sem gerði pizzuna setti chili, þannig að áleggið sást ekki fyrir því. Magga lenti jafnvel verr í því og fékk ennþá meira. Man það næst að ég ætla að opna helvítis kassann áður en ég fer úr fjandans habbalabbasjoppunni, svo ég geti hent pizzunni í brúnt andlitið á þessum skítamörðum. Mig hlakkar ekki til að kúka í dag, ég er nokkuð viss um að það eigi eftir að svíða meira en orð fá lýst útaf þessu helvítis rusli.
Núna sit ég og blogga og leiðist mjög. Bless.

Leave a Comment