Kæri póstmaður

Mikið ofsalega leiðist mér það að þurfa að bíða eftir póstinum. Ég þarf endilega að fara að vinna í því að gera teleportmaskínuna sem ég hef verið með á teikniborðinu að raunveruleika. Leiðist bið. Og flugferðir – mér leiðast þær líka. Það eru margir hlutir sem mér leiðist, sem væri hægt að útrýma með teleportmaskínu.
Ástæðan fyrir því að ég er pirraður á bið akkúrat núna er að ég er búinn að vera að bíða eftir Fleshlightinu lengur en góðu hófi gegnir. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er að promota fleshlight á leenks og fæ þá að sjálfsögðu KYNNINGAREINTAK fyrir framlag mitt til dreifingar á fleshlight um heim allan. Svo má vera að ég fái líka nokkur fleshlight í viðbót til þess að gefa í leikjum á síðunni, þannig að það er til alls að vinna.
Svo er ég líka að bíða eftir einu öðru í póstinum, en það er fjarstýrður bíll, en ég fjárfesti í slíkum fyrir rúmri viku, en hann er ekki ennþá kominn. Ég vona aldeilis að hann komi á morgun vegna þess að ég er í skólafríi alla næstu viku og vantar þá auðvitað eitthvað mér til skemmtunar. Alveg ónýtt að geta ekki farið í skólann, maður er eins og einhver bjáni bara að hanga heima hjá sér og líður skringilega að vera ekki þar…
Annars var partý hjá Atlanum í gær, strákurinn varð eitthvað um þrítugt í dag, 28 kannski eða eitthvað svoleiðis. Mikill stemmari þar og drykkjuleikir í hávegum hafðir, en ég dróg mig nú úr þeirri vitleysu áður en ávaxtaleikurinn byrjaði, sem var ekkert nema vitleysa, ég bíð spenntur eftir myndunum frá Atla þar sem ættu að vera nokkrar myndir af kristjáni með fáránlegasta svip í heimi. Skemmtilegt nokk. Ölvun þónokkur hjá viðstöddum, rétt yfir meðallagi hjá yours truly. Fórum heim frekar snemma, engin bæjarferð, en veit þó ekki með hina, kæmi mér ekki á óvart þótt einhver hafi kúkað í sig í bænum og gubbað á lögregluna. Ég bíð spenntur eftir reports.
Man ekki hvort ég hafi ætlað að skrifa eitthvað meira, en þið getið fylgst með á myndasíðunni hvort atli hendi ekki inn einhverjum myndum fljótlega.

3 Comments »

  1. ingó Said,

    May 11, 2005 @ 20:12

    Þú fórst ekki heim snemma. Þú fórst heim fyrstur eftir einn bjór..SVIKARI

  2. Kjetill Said,

    May 15, 2005 @ 11:41

    EKKI SATT!

  3. svenni Said,

    June 28, 2005 @ 7:13

    ölvun þín var virkilega langt undir meðallagi, og þóttir með ólíkindum óskemmtilegur þetta kvöldið.

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment