Í skóla skemmti ég mér

tralalalallalalala

Já, skólinn er skemmtilegur. En á ég að segja ykkur hvað er ennþá skemmtilegra?
Jú, það er auðvitað það að vakna eftir fyllerí þunnur.

Annars átti pjakkurinn hann golli afmæli á laugardaginn og bauð hann því til hófs. Þar voru ýmsar guðaveigar á boðstólum, þar á meðal vodkaskot (sem ég fékk mér ófá af), gin og gos, bjór og ég veit ekki hvað og hvað. Og auðvitað gleymdi ég ekki að taka með mér partyshooterinn, því eins og flestir lesendur mínir ættu að vita þá er sko ekki party án partyshooters.
Hápunktar kvöldsins voru allnokkrir, en helst ber að nefna að Valdimar sullaði ítrekað yfir sig, þar á meðal þegar hann var að fá sér eitt stykki hressandi partyshooter. Einnig var skemmtilegt þegar fara átti í bæinn ákváðu allir að drepast (Kristján, Noora og Einar) hjá gollanum og komast ekki í bæinn. Helvítis fýlupúkar og ómenni það, þið fáið ekki partýstig í þetta skiptið!
Annars var ölvun yfir meðallagi, ég náði að æla einusinni upp í munninn á mér stuttu eftir að klára úr 1ltr bjórkönnu gollans (óhugnarlega ógeðslegt, sérstaklega þar sem ég hafði étið þrefaldan dagskammt af mexíkanskri kjötkássu 1-2 tímum áður)
Mér tókst ekki heldur að bæta partyshooter metið mitt, en ég kenni nú bara kjötkássunni um það, ég var einfaldlega of mettur!

Leave a Comment