Jebb, helgin var semsagt góð.
Djamm á föstudaginn, sem var reyndar miður skemmtilegt, ekki næg ölvun og ekki skemmtilegur skemmtistaður. Byrjuðum að drekka hjá einari einari (2x einari), nokkrir partyshooterar og svona – stefndi í allskemmtilegt kvöld, en einhvernvegin tókst einhverjum að skemma það, líklega atli samt þar sem hann er mikill fylgismaður parallel ports og allrar tækni sem er úreld. Hún ef nefnilega ekki úreld, eða jú sko hún er úreld… EKKI SEGJA AÐ HÚN SÉ EKKI ÚRELD ÉG SAGÐI ÞAÐ ALDREI! ÉG SAGÐI ALDREI NEITT! Bíddu, ég ætla að finna eitthvað á google til að sýna fram á enn einn persónuleikann minn. Eða svona myndi maður allavega segja ef maður væri atli og tröll mikið, með háa rödd og ennþá hærra höfuð.
Ekki var ég þunnur eftir þetta, sem er gott. En aðal kvöldið var samt eftir, laugardagskvöldið.
Þá vorum ég,valdi og gollinn heima hjá golla á jörgensgötunni, og sötruðum öl og veigar. Og spiluðum tölvuspiiil.
Ekki nóg með það, heldur tók ég absinthe flöskuna mína líka með, og voru allir spenntir mjög að fá að smakka smá absinthe. Fyrst tókum við absinthe “eins og það á að drekka það” en það var vægast sagt ódrekkandi og ei hressandi né ferskandi. Þá tókum vér og valdinn á það ráð að staupa það. Gollinn var hinsvegar of mikil stúlka til þess að treysta sér í það og tók bara eitt staup. Í öllu þessu drukkum við líka svona 10 bjóra hver, á milli þess sem valdinn sagði “Ég er svo FULLURRR!”, sem var ansi oft. Þess má einnig til gamans geta að það er búinn 2/3 af absinthe flöskunni minni, sem ég keypti dýrum dómum í þýskalandinu góða. Samt fann ég ekki fyrir neinum ofskynjunaráhrifum eða neinum af auglýstu aukaverkununum. Kannski að skita sé aukaverkun? Áður en yfir lauk vorum ég og gollli búnir að hátta valda í rúmið og ég búinn að fara ca. 5 kúkaferðir á klósettið.
Skemmtileg saga líka með þessar kúkaferðir, vegna þess að þær héldu áfram alla nóttina, og daginn eftir, og mánudagurinn byrjaði meiraðsegja á einni mjöööög djúsí skitu. Þetta var líka enginn venjulegur kúkur, þetta var grade-A shiznit skita. Með tilheyrandi svakalegum soundeffects. Ég er ekki frá því að þetta hafi verið flottara og háværara en skituatriðið margfræga í dumb and dumber, klósettskálin magnaði hljóðin líka geðveikt upp. Skita er sko málið, mér finnst ég vera 20kg léttari og mega éta allt. Ég verð greinilega að fá mér illa steikt beikon á habbalabbapizzu oftar.
En það besta við skituna var samt að mér var (er) orðið svo illt í rassgatinu af öllum þessum skeiningum að ég á bágt með að setjast niður án þess að væla örlítið eins og stunginn grís. Fjandakornið hvað það er nú hressandi.
YFIR OG ÚT, STARÁLFUR