Sumartími

Núna er semsagt komið sumar í danmörku. í morgun vaknaði ég og klukkan var einum tíma meira.. Núna er 2ja tíma munur á íslandi og danmörku… Og ég er með höfuðverk af þessari helvítis vitleysu!
Köbenferðin er að ná hápunkti, en ég fer til odense á morgun. Svo tekur við skóli og flutningar. En það er einmitt skemmtilegt að segja frá því að ég er að fara að flytja í 4 skiptið á ca. 5-6 mánuðum. Ég bara fæ varla nóg af því að flytja, aldrei að vita nema ég flytji svo fljótlega aftur. Skemmtilegt, sérstaklega að borga depositum og svona… Punga út fullt af pening og láta dani geyma hann án allra vaxta.
Nóg í dag – farið að skoða leenks!

Leave a Comment