Archive forJanuary, 2005

haaa

Jæja, fannst nú vera kominn tími á blogg.

Ég er nýkominn frá ítalíu úr gríðarlegri skíðaferð. Skemmtilegt nokk að skíða niður brekkur samhliða köppum eins og Schumacher og Barrichello. Þeir náðu þó ekki að tala við mig, lífverðirnir mínir héldu þeim frá. Everyone wants a piece of the… ble.

Ég er ennþá á Íslandi, fer til Danmerkur aftur á mánudaginn. Hlakkar mjög í mér þar að flytja út úr núverandi íbúð og flytja ekki í neitt í staðinn.. Ég hef heyrt að bekkirnir í munkemose have séu helvíti góðir þannig að ég ætla ekkert að vera að vesenast með það. Það er líklega þráðlaus nettenging þar einhversstaðar sem ég hlýt að geta komist í. Svo er jú líka farið að vora þannig að ekki væsir um mann þarna, ódýr bjór og svona. Mér er bara strax farið að hlakka til að baða mig í ánni í Óðinsvéum, andaskítur ku vera fjandi góður fyrir húðina. Svo þegar maður hefur étið nokkrara hráar brauðaldar endur ætti maður að hreinsast vel ef skitunni sem maður fær af salmonellunni.

Lítið annars að frétta í þessu fyrsta bloggi ársins. Skólinn byrjar 7feb hjá mér þannig að mér þykir líklegt að bloggið fari eitthvað að glæðast uppúr því. Á meðan getið þið slegist í hópinn með þeim 50þús sem lesa hina síðuna mína. Það er alltaf eitthvað nýtt þar.

Comments (1)

Gleðilegt ár

Jebb, nýtt ár, nýtt líf.

Búinn að vera í sveitinni hjá grettu síðan 30 jan, orðinn spikfeitur og grunar að ég fari með næsta bíl í sláturhúsið…

Svo er rúm vika í að ég fari til ítalíu á skíði. Gott ár framundan, jebb jebb.

Comments