Skóli styrkir andann

Jebb, í skólanum ég er, rétt eins og fyrri daginn.
Fékk einmitt bréf þaðan um helgina þar sem mér var tjáð að ég væri svo framúrskarandi skemmtilegur og myndarlegur að ég fæ að halda áfram á næstu önn, sem byrjar einmitt 7 febrúar. Skemmtilegt það, þar sem það þýðir að ég er með næstum 2ja mánaða jólafrí. Ég fer líka bara í eitt próf, sem er á miðvikudaginn og endist í 30mín. Svo er skóli fram á föstudag, þá þarf ég að sýna síðuna sem ég er búinn að vera að dunda mér í. Samt eiginlega ekkert búinn að dunda mér í henni, þyrfti að vera lítið eitt duglegri og ef til vill gera *eitthvað*… anything at all.
Annars var mér eins og svo oft áður hugsað til bloggsins þegar skítastingurinn lét til sín segja, snemma morguns. Ótrúlega óhressandi þetta helvítis kúkavesen endalaust í skólanum. Ég þarf eiginlega að leggja inn beiðni hérna til að fá betri klósett hérna… Eða kannski bara nota fatlaðaklósettið… Haltra bara inn á það… Fólk getur ekkert sagt!

Leave a Comment