Bloggedíblogblogg

Stemmari hér á ferð. Helgin var einkar hressandi, byrjaði á því að ég fór til gollans í xbox, nema hvað að eigi var spilað neitt xbox heldur bjór drukkinn sem aldrei fyrr. Svo héldum vér ásamt gólfinum og tröllinu á Ryans, sátum þar að drykkjuleikjum 3 þar til ölvun gerði það að verkum að teningaspil var úr sögunni. Þá var haldið á efri hæðina þar sem nokkrir skítugir íslendingar voru við völd og var það svo. Að lokum var haldið að fá sér flatböku til að brenna í burtu allt sem líktist skinni í efrigómnum og tungunni.
Laugardagurinn hófst á mikilli þynnku, sem stigmagnaðist við verslunarferð þar sem leitaðar voru uppi jólagjafir. Ég verslaði eigi neitt sökum þynnku og hugsanaruglings, en verslaði þó eilítið í miðstöð garðs rósarinnar daginn eftir. Mikill hressleiki þar við völd og danir kunna svo sannarlega að versla þangað til að þeir detta, eins og spakur maður hefði ef til vill orðað það, en líklega ekki.
Skemmtilegt blogg í dag eins og allir sjá, þannig að ég ætla að spara gærdaginn og núið þangað til síðar, en get þó gefið teaser “Ég fékk nýtt verkefni í skólanum í gær, og í dag fer ég í viðtal”
Og það var og.

3 Comments »

  1. Gummi Said,

    December 2, 2004 @ 13:16

    Kemuru eitthvað heim um jólin??

  2. keli Said,

    December 4, 2004 @ 22:56

    Jamm, ég kem 18des og verð til 30 janúar

  3. motorola ringtones free Said,

    October 6, 2005 @ 7:36

    motorola ringtones free

    motorola ringtones free of Ansonia Newstadt The Kundavishas of the Tiger, by Maurice Akausha Five Huskisson’s

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment