Bryðgðe Jóhanns
Jebb, ég fór á Bridget Jones í gær. Ég er töff, hipp og kúl, læt ekki neinn segja mér annað. Í bíóinu voru samankomnir allir stærstu saumaklúbbar Óðinsvéa ásamt dulitlum samkynhneigðum karlpeningi. Og svo var ég þarna líka. Ég skildi nú ekki mikið af þessari mynd. Ég var kannski að pæla of mikið í því hvað mér fyndist hún RÉnÉ Zéldigger ofboðslega ófríð kona. Það Og svo hjálpaði það ekkert að hún var sjúklega feitt (“TSJÖBBÍ” kannski fallegra orð?).
Eftir myndina var mér tjáð af kærustunni minni og þeim sem með í bíóið fóru að bókin hefði aldeilis verið miklu skemmtilegri, en myndin hafi nú alveg verið prýðisgóð líka. Ég sagðist nú bara ekki hafa náð mér í þessa bók ennþá, en ætlaði sko aldeilis að gera það núna og glugga í þessa biblíu karlmennskunnar.
Ein skemmtileg pæling um þessa bíóferð: Fyrir myndina voru auglýstir 2 tölvuleikir, Halo2 (sem ég er einmitt að niðurhala núna!) og svo Burnout3 (sem ég á). Hverskonar markaðssérfræðingar hafa eiginlega hugsað sér gott til glóðarinnar að auglýsa svona tölvuleiki fyrir sýningu á kerlingamynd dauðans? Ég hefði nú getað skilið þetta ef þetta hefði verið The Sims eða eitthvað, en svo var nú heldur betur ekki Grétar minn! Þetta þótti mér nú samt skemmtilegt og gerði bíóferðina þrælspennandi, því þessir trailerar fyrir Halo2 eru ekkert smávegis svalir. Ef ég hefði ekki farið að kúka fyrir 20mín síðan þá væri ég líklega búinn að missa saur af spenningi við að niðurhala leiknum. Bara að hann verði skemmtilegur.
Svo var nú bara skóli í morgun, en ég var þar bara í 1klst. Stuttur skóladagur mjög vegna þess að það var fundur hjá umsjónarkennaranum, nema hvað að hann er algjörlega með hland í stað heilasella og hefur aldrei hugmynd um hvurn fjandann hann átti að segja okkur þegar við erum loksins mætt. Því er nú ver og miður en svona er þetta bara. Ég er s.s. kominn heim og ætla að skrifa svosem eina blaðsíðu í ritgerðinni minni og klára uppsetninguna á henni. Eina vitið það. Takk fyrir lesninguna lesendur góðir, veriði sæl.
online forex trading Said,
October 11, 2005 @ 14:09
online forex trading
online forex trading It looses no half-sorry master-bees, no perplexities, and no mysteries. His republicanism dis