Veðrið er ávallt indælt

…Í véum Óðins. Strákurinn er mættur í skólann, rennblautur sem og í sjampóauglýsingu. Og einnig skítugur sem og í dekkjaauglýsingu. Jebb, það er slabb úti. Það er ekki þurr blettur á mér, þökk sé skítuga dananum sem stal frambrettinu af hjólinu mínu fyrir einhverjum mánuðum síðan. Takk fyrir kæri skítugi dani, þú átt einn inni hjá mér.
Helgin var gríðarleg. Ég fékk rauðvín og önd… og svo kom laugardagur og þá fékk ég nammi. Og svo sunnudagur með vondum kalkúnanöggum og eggjum og beikoni. Viðburðarík helgi mjög og skemmtileg útí ystu æsar.
Þess má einnig til gamans geta að ég skilaði gríðarlega fallegu CV og umsókn til skólans á föstudaginn, 2 KLUKKUSTUNDUM fyrir skilafrestinn. Ef ég er ekki fyrirmyndarnemandi þá veit ég sko ekki hvað! Umsóknin var skrifuð í þeim skemmtilega stíl sem ég kýs að kalla sleikjustílinn. Einnig skrifaði ég undir með því að teikna typpi með loðinn pung að sprauta á textann. Falleg mynd það mjög og einnig falleg umsókn. Ef ég kemst ekki inn á þessu, þá veit ég ekki hver kemst inn. Ég fer auðvitað til útlendingaeftirlitsins og úða yfir þá rasistablótsyrðum og hverskonar fjandans drulluháleistar og lúðulakar þeir eru.
Nóg í dag, sjáumst síðar, hælbítar.

Leave a Comment