Enn kominn tími á blogg

Gríðarhressandi skóladagur þetta, fyrirlestur um atvinnuumsóknir og atvinnuviðtöl. Ég held að ég hafi dáið örlítið inni í mér við það að hlusta á þetta alltsaman. Kerlingin sem var með fyrirlesturinn talar hraðar en akureyringur á spítti og skilningur minn var í samræmi við það. Skemmtilegt að fylgjast með svona fólki, sem enginn skilur en allir þykjast skilja. Merkilegur fjandi.
Ég er annars bara að hugsa um að drulla mér heim, ekki er ég lengur að hlusta á fyrirlesturinn og skóladagurinn er senn á enda kominn. Sem er gott. Svo get ég farið heim, klætt mig úr fötunum, sett spandau ballet á fóninn, smurt mig í chunky hnetusmjöri og dansað YMCA. Jebb, sounds like a plan.

1 Comment »

  1. Gummi Said,

    November 16, 2004 @ 13:01

    chunky hnetusmjör er ekki að gera góða hluti þessa dagana…remúlaði er aftur á móti da shizzle!!

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Leave a Comment