Blogg blogg og aftur blogg
Ég er búinn að vera lítið eitt veikur seinustu dagana. Það er að sjálfsögðu ekkert nema hressandi og skemmtilegt þannig að ég ætla ekkert að vera að kvarta yfir veikindunum blessuðum. Hinsvegar ætla ég að kvarta yfir einu, og í þetta skiptið verða það ekki töfl mín við páfann. Það kemur þó lítið eitt að postulíninu þar sem ég ætla að kvarta yfir þvaginu mínu. Það er svosem ekkert að þvaginu mínu, en það er einhver fjandinn af þvagblöðrunni því ég þarf að fara að míga, að mér finnst á 1-2klst fresti þótt ég hafi ekki drukkið neinn fjárans fjanda nema mjólkina með morgunkorninu. Þetta er undarlegt mjög og miður nokk. Ég hef hinar ýmsu kenningar um þetta; þar á meðal það að þetta tengist hitastiginu í skólanum sem er oftar en ekki fyrir neðan frostmark. Þessa ályktun dreg ég frá því að pungurinn dregst saman í miklum kulda, þannig að af hverju ætti þvagblaðran ekki að gera það? Minna pláss fyrir piss þýðir jú ekkert annað en það að maður þurfi pissa reglulegar. Þetta er nú ekki til eftirbreytni, en ég vona að þetta reddist eftir apóteksferðina á eftir þar sem ég ætla að kaupa mér þvaglegg. Þannig er ég í rauninni að *UPPFÆRA* sjálfan mig og margfalda stærð þvagblöðrunnar með utanáliggjandi blöðru. Spennandi mjög og þið getið verið viss um að ég leyfi ykkur að fylgjast með þessu um leið og það gerist.
Ég er í skólanum núna í feitum fíling eins og þið hafið kannski greint úr ofangreindum texta. Hér sit ég við heimasíðugerð. Á að gera PORTFOLIO til að geyma öll mín merku verk og segja frá sjálfum mér. Þessi skemmtilega *mappa* eins og ég kýs að kalla á móðurmáli voru er eitthvað sem á að hjálpa manni að komast í áframnámið sem ekki allir komast í. Ég ætti þó að komast inn sökum gríðarlegs gáfnafars og göfugmannlegs útlits og manngæða. Því jú eins og allir sem ég þekki geta vottað þá er ég hvers manns hugljúfi og sweettalker frá fjandanum kominn.
Ég er farinn að pissa.
naflalaus Said,
November 11, 2004 @ 17:59
ertu ekki bara með blöðrubólgu Keli kella;)
Keli Said,
November 11, 2004 @ 18:35
Fjandinn hafi það nei! Taktu þetta til baka!