ÚFFFFFF
Andskotans fjandi og fjári sko… Ég hef sjaldan í lífinu átt jafn erfitt með gang og aðrar hreyfingar sökum skítastings. Ég er barasta hreinlega að skíta í buxurnar. Þetta er hræðilegt. Og það versta við þetta er að ég er búinn að vera svona í klukkutíma og það eru margir klukkutímar í viðbót eftir af skólanum. Ég verð svo löngu búinn að tapa skítastingnum þegar ég verð kominn heim að það er glatað. En ég á líklega eftir að vera með hann þangað til að ég sest á hjólið á eftir. Helvítis hjól nefnilega, það er algjörlega örugg leið til þess að tapa þörfinni til þess að kúka. Það er eins og það sé skrúfað fyrir krana, um leið og maður sest á hnakkinn hverfur öll kúkatilfinning undir eins. Merkilegur fjandi þetta sko.
Annars var ég að fá mér nýjan síma… En ég kýs að kalla þetta multitool dauðans sökum þess að ég get horft á playboy channel í honum, vafrað á netinu, hlustað mp3 og stundað video conversation. Jú og svo kemst ég líka á msn. Semsagt þetta er allsvakalegur sími sem kostaði heila krónu. Jebb, ég er big spender. Símanúmerið mitt nýja er +45 3110 2169… gríðarlega hljómfagurt og skemmtilegt númer þetta, ætti nú ekki að vera erfitt fyrir ykkur sem hringja einhverntíman í mig að muna. Nema hvað það hringir enginn í mig þannig að þið getið farið helvítis til. Djöfulsins drulluháleistar og lúðulakar. Ég hef aldrei kunnað vel við ykkur!
Skólinn er fjandi hressandi eins og venjulega, skítastingur, verkefnavinna og annað sem tekur eigi að tala um. Mér finnst nefnilega skítastingurinn mikilvægastur. Hann er líka hæst í huga mínum.
Stay white, eat..poo…thing..
forex trading Said,
October 10, 2005 @ 17:30
forex trading
forex trading sev’ring ( notwithstanding their testicular sanctus-bell ) not any regarded but from boatmens to sayso : ( the com